Grýla á fæðingardeildinni
Það er alltaf gaman að fá fréttir af Grýlu. Nú hefur bókaútgáfan Salka gefið út bók eftir Bryndísi Víglundsdóttur þar sem sagt er frá því þegar Grýla fór á fæðingardeildina í Reykjavík. Hún hafði farið að þykkna mjög og því ekki um annað að ræða en leita sér hjálpar á fæðingardeild Landspítalans. Bryndís er okkur að góðu kunn frá því hún bjó hér á Höfn síðastliðinn vetur og kenndi þá m.a. á enskunámskeiðum á vegum Fræðslunets Austurlands. Að sögn Bryndísar skrifaði hún söguna á Höfn enda andagiftin mikil hér í ríki Vatnajökuls. Bókin um Grýlu fæst í Nettó. Bryndís vann einnig að þýðingu bókar um vatnið meðan hún bjó á Höfn. Höfundur bókarinnar, Masaru Emoto lýkur upp fyrir okkur leyndardómum vatnsins og lífgefandi afli þess. Fyrir þá sem hafa áhuga á kaupa bókina um vatnið geta nálgast hana hjá Sveinbjörgu Jónsdóttur, nuddara.
Bryndís bað fyrir jólakveðjur til lesenda vefsins og þakkar vinum og kunningjum á Höfn góða viðkynningu.





Skrifa athugasemd