Bæjarstjórn bókar um náið samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og Jöklaseturs
Á fundi bæjarstjórnar í gær tók bæjarstjóri til máls og sagði að fundað hafi verið í stjórn Jöklasýningar ses og las hann upp eftirfarandi bókum sem þar var samþykkt. Lagði hann hana fram til atkvæða. Bókunin hljóðaði svona:
Jöklasýning var sett upp til heiðurs náttúru svæðisins og fellur vel að því hlutverki þjóðgarðsins að fræða fólk um náttúruna og náttúruvernd. Uppsetning sýningarinnar er í anda þess sem ráðgjafarnefnd um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs setti fram um sýningu í gestastofu. Þar er sagt að í gestastofu yrði um að ræða fræðslusýningu í þrem meginhlutum: útstilling mynda og texta og áþreifanlegra hluta, lifandi myndir (video, dvd) og fróðleiksbrunnur bóka, tímarita og tölvugrunna. Jöklasýning fer létt með að uppfylla öll þessi skilyrði. Sýningin býður upp á upplifun, fræðslu um náttúruna á Suðausturlandi og jöklafræði.
Sýningunni er skipt niður í fimm þætti:
- Kynning og náttúruvernd
- Náttúra og þjóðgarður
- Jöklafræði
- Upplifun - m.a. gengið inn í ígildi jöklasprungu og íshellis.
- Búseta við jökul og rannsóknarferðir.
Í sýningunni eru uppsett dýr og fuglar sem eru einkennandi fyrir svæðið, kvikmynd um eldgos í Vatnajökli er sýnd á tjaldi og þrjár aðrar myndir á 42" skjám. Boðið er upp á margmiðlunarefni, s.s. upplýsingar í tölvum, ýmis hljóð, líkön og aflestur mælitækja. Einnig fylgir með útsýnispallur með örnefnakorti. Þá er aðgengilegur texti um náttúru svæðisins, náttúruvernd og þjóðgarða og jöklafræði. Stórar myndir af náttúru svæðisins prýða sali sýningarinnar. Að lokum er leikmynd uppsett af jöklaförum við jöklakofa og tjald.
Hugmynd um samstarf Jöklasýningar og þjóðgarðs er ekki ný af nálinni. Frá því að umræða hófst um uppsetningu Jöklasýningar hefur hún verið tengd við hugmyndina um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Í stefnumörkun bæjarstjórnar Hornafjarðar frá árinu 2001 segir að eitt af aðalmarkmiðum Hornfirðinga í þjóðgarðsmálum sé að koma á fót samstarfi milli Jöklasýningar og þjóðgarðs. Þá segir í niðurstöðum undirbúningsnefndar um stofnun Jöklaseturs frá nóvember 2001 að æskilegt væri að þróa samstarf Jöklasýningar og hins fyrirhugaða þjóðgarðs.
Bæjarstjórn Hornafjarðar og stjórn Jöklaseturs ses. óska eftir því að nú þegar hefjist viðræður um náið samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og Jöklaseturs ses. Stefnt verði að því að strax og Vatnajökulsþjóðgarður hefur formlega verið stofnaður verði rekin gestastofa í tengslum við Jöklasýninguna á Höfn, en einnig verði undirbúningi að byggingu nýrrar gestastofu þjóðgarðsins á Stekkanesi við Höfn hagað þannig að mögulegt verði að flytja Jöklasýninguna þangað þegar sú bygging er risin og tekin til starfa. Flutningur Jöklasýningar í gestastofu á Stekkanesi yrði verðugt framlag Austur-Skaftfellinga til eflingar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða bókun.
Heimasíða Jöklasýningar




Skrifa athugasemd