Desember
Jólamarkaður í Nesjum
Jólamarkaður í Nesjum
Jólamarkaður í Nesjum
Mynd 2 af 3
1 2 3

05.12.2007 Desember

Jólamarkaður í Söluskálanum í Nesjum

Það er aftur komið líf og starfsemi í söluskálann í Nesjum og verður svo fram að jólum. Kristjana Jensdóttir opnaði þar jólamarkað um helgina sl. og verður opið alla daga frá kl. 16-20. Vöruval er af ýmsu tagi svo sem fatnaður og alls konar jólaskraut og m.a. geta þeir sem vilja skreyta jólatrén sín upp á amerískan máta fengið allt til þess þar en eins og flestir vita er það skreytingarefni mikið frábrugðið þessu sem við eigum að venjast. Kristjana hefur verið með veitingasölu í Nesjaskála sl. tvö sumur og sagði að sér hefði fundist alveg ótækt að ekkert væri þar um að vera í jólamánuðinum svo hún ákvað að setja upp þennan jólamarkað enda aldrei of mikið af slíku hjá okkur fyrir jólin.

Kristjana vill taka fram að það er heitt kaffi á könnunni í Nesjaskála og gómsætar piparkökur með.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica