Desember
Laurey Helgadóttir
Laurey Helgadóttir
Laurey Helgadóttir jólagestur á Hornafjörður.is

01.12.2007 Desember

Suðursveitardagur, Bókamessa-Fjölskyldujólahlaðborð

Annan des. Fyrsta sunnudag í aðventu verða Suðursveitungar í sannkölluðu jólaskapi og verður boðið uppá tvær fjölskylduhátíðir, á Þórbergssetri og Smyrlabjörgum. Hátíðin á Þórbergssetri hefst kl. 14.00 með bókamessu þar sem m.a. Pétur Gunnarsson, Hjörleifur Guttormsson og Soffía Auður Birgisdóttir lesa upp úr nýjum bókum og fjallað verður um efni þeirra. Hjörleifur Guttormsson kynnir bókina Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár eftir Jack Ives og einnig kynnir Menningarmiðstöð Hornafjarðar nýútkomna bók Sigurðar Björnssonar Sótt fram. Bæði þessi rit hljóta að höfða sérstaklega til þeirra sem vilja fræðast um sögu Austur- Skaftafellssýslu og mannlíf hér áður fyrr.

Á milli messu-þátta verða í boði kaffi, heitt súkkulaði og gómsætt heimabakað meðlæti eins og það best gerist .Opið verður inn á sýningar í Þórbergssetri þar sem bækur Torfhildar Hólm eru til sýnis ásamt mynd af líkneski Ólafs helga, verndardýrlings.

Fjölskyldujólahlaðborðið á Smyrlabjörgum er frá kl.16.30 -20.00 þar sem aldurstakmark er frá 0 uppí hundrað og eitthvað, eins og Laufey Helgadóttir hótelstjóri orðaði það. Þetta er fyrsta jólahlaðborðið sem ætlað er allri fjölskyldunni og matseðillinn jafnt sniðinn að þörfum barnanna sem þeirra eldri meira að segja er í athugun að vera með jóla ?pizzu. Fjöldi rétta er á bilinu 70-90 og ættu því hver einast sem þangað kemur að fá mat við sitt hæfi og ekki þarf að efast um gæði réttanna því Laufey er algjör snillingur í matargerð og með henni er listakokkurinn Kristján Guðnason sem kann vel til verka í eldhúsinu.

Rétt er að geta þess að spurst hefur út að von sé á góðum gestum í fjölskylduhlaðborðið sem sé jólasveinunum sonum Grýlu gömlu og Leppalúða , þeir fréttu að þar yrði fullt að skemmtilegum krökkum og mikið af jólamat svo þeir ákváðu að mæta á staðinn.

Það er því sannkallaður Suðursveitardagur á sunnudaginn og upplagt að rífa sig upp frá jólaundirbúningnum eða hversdagsamstrinu og fara fjölskylduferð í sveitina og njóta gestrisni heimamanna þar



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica