Desember

Vedramot

Bíó í Sindrabæ eftir tveggja ára hlé - 28.12.2007 Desember

Eftir tveggja ára hlé á kvikmyndasýningum á Hornafirði verður myndin Veðramót sýnd í Sindrabæ í kvöld kl. 18:00 og 21:00. Myndin sem er eftir GUÐNÝJU HALLDÓRSDÓTTUR hlaut m.a. 11 tilnefningar til EDDUverðlauna í ár. Með aðahlutverk fara Hilmir Snær Guðnason og Tinna Hrafnsdóttir. Umsögn gagnrýnenda um myndina segir m.a.: “...sterkur og spennandi söguþráður heldur manni við efnið, frábær leikur, tónlist og myndgæði gera Veðramót eftirminnilega upplifun. Þetta er mynd sem allir verða að sjá! Besta Íslenska myndin síðan Með allt á hreinu” - S.G., Rás 2 Lesa meira
 
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

Áramótapistill Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra - 28.12.2007 Desember

Náttúran er síbreytileg. Því hafa Skaftfellingar þurft að venjast í gegnum tíðina. Árið 2007 minnir okkur enn og aftur á að manneskjan ríkir ekki yfir náttúrunni heldur er hluti af henni. Sveiflur í lífríki hafsins hafa löngum ráðið þróun á landsbyggðinni. Niðurstaða Hafrannsóknastofnunar um ástand þorskstofnsins og ákvörðun um stórfelldan niðurskurð þorskveiðiheimilda næstu tvö árin stendur upp úr þegar litið er til atburða á árinu 2007. Hitt ber svo að líta að samfélagið við rætur Vatnajökuls hefur áður glímt við áföll og skemmst er að minnast breytinga á rekstri Ratsjárstofnunar. Reynt hefur verið að finna nýja hluti sem komið gætu í staðinn en mótvindurinn er sterkur. Það ríkir þó almenn bjartsýni í samfélaginu á Hornafirði. Lesa meira
 
Veðurblíða á Hornafirði í dag

Þráðlaus internetþjónusta Martölvunnar - 23.12.2007 Desember

Fyrirtækið Martölvan hefur nú hafið dreifingu á þráðlausu interneti frá Sunnuhlíð í Vestri til Almannsakarðs í austri. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Martölvunni að búið sé að tengja fyrstu notendur og að prófanir hafi farið fram úr björtustu vonum og er ekki annað að sjá en að þessi þjónusta virki mjög vel. Kerfið virkar með þeim hætti að notendur setja upp litið box með loftneti sem á að duga í flestum tilfellum en einnig er í boði búnaður sem settur er upp úti við og tekin snúra inn að boxinu. Stofngjald að sambandi er kr. 29.900 fyrir þá sem gera bindandi samning til 36 mánaða. En kr. 74.900 án bindingar WiMax endabúnaður hjá notendum verður eign Martölvunnar og ef til uppsagnar kemur er honum skilað til Martölvunnar. Lesa meira
 
Velavana_skip_023

Að varpa ábyrgð yfir á hafnsögumann er merki um ábyrgðarleysi - 21.12.2007 Desember

Hafnarstjórn Hornafjarðar sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu í dag, þar segir: ljósi umræðu í fjölmiðlun undanfarna daga um þær staðhæfingar skipstjóra Axels að hafnsögumaður hafi gefið honum ranga stefnu frá Hornafjarðarósi vill Hafnarstjórn benda á að öll gögn og upplýsingar um málið benda til þess að hafnsögumaður hafi veitt skipstjóra allar þær leiðbeiningar sem þurfti til að sigla Axel rétta leið frá Hornafjarðarósi. Auk þess blasti við skipstjóranum á siglingakortum að hann hafi villst af leið. Ennfremur er greinilegt að skipstjórinn hafi algjörlega gleymt að fylgjast með ljósum frá Hvanneyjarvita. Hafnarstjórn undirstrikar því að ábyrgðin er eingöngu og alfarið á herðum skipstjóra Axels. Lesa meira
 
Netto_Kiwanis_2

Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó - 19.12.2007 Desember

Félagsþjónustu Hornafjarðar barst í dag 200 þúsund kr. gjafabréf á matarúttekt í Nettó. Gefendurnir voru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 150 þúsund og Nettó bætti 50 þús. við gjöf þeirra Ós-félaga. Stefán Ólafsson tók við gjafabréfinu sem Grétar Vilbergsson formaður klúbbsins afhenti og þakkaði Stefán fyrir góða gjöf og sagði að þessu yrði þessu skipt milli nokkurra heimila og yrði þetta kærkominn glaðningur fyrir jólin því í okkar litla bæjarfélagi eru vissulega til heimili sem eru hjálpar þurfi. Lesa meira
 
Skjavarp_jola

Jóla- og nýárskveðjur SkjáVarps einnig sendar út beint á netinu - 19.12.2007 Desember

Í ár bætist við sá möguleiki að sjá jóla- og nýárskveðjur Skjávarps í beinni útsendingu á netinu en útsending SkjáVarps hófst þar í febrúar s.l. Jóla- og nýárskveðjur Skjávarps er eitt af því sem er orðinn fastur liður í jólastemningunni hér í Ríki Vatnajökuls enda hafa kveðjurnar verið sendar út á dreifikerfi SkjáVarps undanfarin 14 ár. Mikil aukning hefur verið á kveðjum á milli ára og var nýtt með slegið um síðustu jól en þá bárust 148 kveðjur. Nú ertu það ekki eingöngu félög, fyrirtæki og stofnanir sem senda kveðjur því einstæklingar hafa í auknum mæli nýtt sér þessa leið til að koma kveðju sinni á framfæri. Með textanum (kveðjunni) eru birtast bakgrunnsmyndir úr Sveitarfélaginu og undir þeim er spiluð jólatónlist. Lesa meira
 
Aðventustund 2007

Aðventustund hjá Skaffellingafélaginu - 14.12.2007 Desember

Sunnudaginn 9. desember hélt Skaffellingafélagið sína árlegu aðventustund í Skaftfellingabúð. Aðsóknin var mjög góð, eitthvað yfir hundrað manns. Fyrst söng kór Skaffellingafélagsins en nýr stjórnandi hefur tekið við honum, Friðrik Vignir Stefánsson. Síðan söng Jóna Gísladóttir einsöng. Gunnþóra Gunnardóttir frá Hnappavöllum las upp úr ný útgefinni bók, Sótt fram sem Sigurður Björnsson frá Kvískerjum hefur ritað um sögu sýslunefndar Austur Skaftafellssýslu og Öræfin. Síðan var sungið og gengið í kringum jólatré við undirleik Kristins Kjartansson úr Mýrdal sem spilaði á harmóniku og kom skeggjaður náungi ofan úr fjöllunum í heimsókn. Lesa meira
 
Jólasveinar í Haukafelli

Fjölskyldudagur í Haukafelli - 12.12.2007 Desember

Það er orðin hefð fyrir því að Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu bjóði fólki að koma í skóginn í Haukafelli einn sunnudag í desember og að þessu sinni verður það sunnudaginn 16. desember frá kl. 11-16. Þá geta allir fellt sitt eigið jólatré. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur að fá sér bíltúr í sveitina og njóta útivistar í skóginum. Allir eru velkomnir í Haukafell þar sem boðið er upp á kakó og kökur og oftast hafa jólasveinar úr Fláfjalli aðstoðað fólk við að velja sér jólatré og koma því í bílinn. Lesa meira
 
Ingvi Sigurðsson

Nýr verksmiðjustjóri í Fiskimjölsverksmiðjunni - 11.12.2007 Desember

Ingvi Sigurðsson hefur verið ráðinn verksmiðjustjóri í Fiskimjölsverksmiðjuna sem Skeggey ehf, dótturfélag SÞ, rekur. Hann hóf störf nú um mánaðarmótin. Ingvi hóf störf hjá Skinney hf við stofnun þess félags árið 1968 og var háseti á fyrsta bát félagsins, Steinunni. Hann hefur starfað óslitið hjá félaginu síðan, sem sjómaður, netagerðarmaður og við verkstjórn fiskvinnslunnar. Lesa meira
 
Nesjaskóli

Guðjón Pétur átti hæsta tilboðið í Nesjaskóla 60,5 milljónir - 11.12.2007 Desember

Tvö tilboð bárust vegna Útboðs Ríkiskaupa á Nesjaskóla. Í dag voru tilboðin opnuð og var það Guðjón Pétur Jónsson athafnamaður sem átti hæsta tilboðið í fasteignirnar, hann bauð 60.5 milljónir. Fasteignamat eignanna er kr. 54.197.000,- og brunabótamat kr. 324.800.000. Ríkiskaup sá alfarið um útboð á fasteigninni fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar þ.e. frágang útboðs, auglýsingu og opnun tilboða. Það sem boðið var út voru samtals 2,429 fermetrar. Um er að ræða einbýlishúsið Sunnhvoll, heimavistarskólahúsnæðið, nýja og gamla, kennslustofur, mötuneyti, 4 íbúðir og geymslur. Rétt er að taka fram að það húsnæði þar sem kennsla fer fram á yngsta stigi Grunnskóla Hornafjarðar er ekki hluti af útboðinu. Lesa meira
 
WOW

Hvað gerir Ríki Vatnajökuls fyrir þig - 11.12.2007 Desember

Í dag verður haldinn opinn fundur undir merkjum “Hvað gerir Ríki Vartnajökuls fyrir þig” Fundurinn er á vegum Ríki Vatnajökuls ehf., ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasa Suðausturlands. Á dagskrá fundarins verður kynning á markaðáætlun fyrir árið 2008, ÚH 18 sem er verkefni á vegum Útflutningsráðs en það verður kynnt á fundinum og svo er það sem margir myndu segja að væri rúsínan í pylsuendanum, kynning á Ljósaverkefni Ríki Vatnajökuls. Fundurinn er öllum opin og að sögn Rósu Bjarkar Halldórsdóttur framkvæmdarstjóra Ríki Vatnajökuls hvetur hún alla sem hafa áhuga á markaðs og ferðamálum í Ríki Vatnajökuls að mæta á fundinn. Á fundinum verður farið í hugmyndavinnu og almenna umræðu. Lesa meira
 
Grýla fer á fæðingardeildina

Grýla á fæðingardeildinni - 10.12.2007 Desember

Það er alltaf gaman að fá fréttir af Grýlu. Nú hefur bókaútgáfan Salka gefið út bók eftir Bryndísi Víglundsdóttur þar sem sagt er frá því þegar Grýla fór á fæðingardeildina í Reykjavík. Hún hafði farið að þykkna mjög og því ekki um annað að ræða en leita sér hjálpar á fæðingardeild Landspítalans. Bryndís er okkur að góðu kunn frá því hún bjó hér á Höfn síðastliðinn vetur og kenndi þá m.a. á enskunámskeiðum á vegum Fræðslunets Austurlands. Að sögn Bryndísar skrifaði hún söguna á Höfn enda andagiftin mikil hér í ríki Vatnajökuls. Bókin um Grýlu fæst í Nettó. Bryndís vann einnig að þýðingu bókar um vatnið meðan hún bjó á Höfn. Höfundur bókarinnar, Masaru Emoto lýkur upp fyrir okkur leyndardómum vatnsins og lífgefandi afli þess. Fyrir þá sem hafa áhuga á kaupa bókina um vatnið geta nálgast hana hjá Sveinbjörgu Jónsdóttur, nuddara. Lesa meira
 
Myndakvöld Skaftfellingafélagsins

Voru þrír saman á fermingarmynd 1954 og nú 53 árum síðar - 07.12.2007 Desember

Fimmtudaginn 22. nóvember hélt Skaftfellingafélagið myndakvöld með myndum frá Öræfum. Þar á meðal annars myndir frá Jakobi Guðlaugssyni í Skaftafelli, Helga Arasyni og Guðjóni Jónssyni frá Fagurhólsmýri. Einnig var boðið upp á kaffi og meðlæti í hléi. Mætingin var um 60 manns. Nokkrar myndir voru frá fermingum í Öræfum þar á meðal af fermingu 1954 og svo skemmtilegt vildi til að þeir þrír sem fermdust þá voru á kvöldinu og létu smella f sér mynd saman af og sést vel hvað þeir halda sér vel þó 53 ár séu síðan !!!!! Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn

Fjárhagur sveitarfélagsins stendur traustum fótum - 07.12.2007 Desember

Á blogsíðu Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra kemur fram eftirfarandi undir fyrirsögninni "Miklar framkvæmdir, framsækinn verkefni og ábyrgð í rekstri", þar segir Hjalti "Á bæjarstjórnarfundi sagði ég eftirfarandi um fjárhag sveitarfélagsins: Fjárhagur sveitarfélagsins stendur traustum fótum. Bankainnistæða er drjúg og fer langt með að borga upp framkvæmdir við sundlaugina upp á 360 miljónir. Rekstrarafgangur ársins 2008 verður góður miðað við núverandi forsendur. Þær geta breyst þar sem kjarasamningar eru margir hverjir lausir og veltan í þjóðfélaginu að minka sem hefur áhrif á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Lesa meira
 
Frá Jöklasýningu

Bæjarstjórn bókar um náið samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og Jöklaseturs - 07.12.2007 Desember

Á fundi bæjarstjórnar í gær tók bæjarstjóri til máls og sagði að fundað hafi verið í stjórn Jöklasýningar ses og las hann upp eftirfarandi bókum sem þar var samþykkt. Lagði hann hana fram til atkvæða. Bókunin hljóðaði svona: |nl|Jöklasýning var sett upp til heiðurs náttúru svæðisins og fellur vel að því hlutverki þjóðgarðsins að fræða fólk um náttúruna og náttúruvernd. Uppsetning sýningarinnar er í anda þess sem ráðgjafarnefnd um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs setti fram um sýningu í gestastofu. Þar er sagt að í gestastofu yrði um að ræða fræðslusýningu í þrem meginhlutum: útstilling mynda og texta og áþreifanlegra hluta, lifandi myndir (video, dvd) og fróðleiksbrunnur bóka, tímarita og tölvugrunna. Jöklasýning fer létt með að uppfylla öll þessi skilyrði. Sýningin býður upp á upplifun, fræðslu um náttúruna á Suðausturlandi og jöklafræði. Lesa meira
 
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)

Ekki búist við stóru hlaupi í Skeiðará - 07.12.2007 Desember

Ekki er búist við stóru hlaupi í Skeiðará að þessu sinni. Hlaupið kemur úr Grímsvötnum og síðast þegar hljóp úr lóninu þar í nóvember árið 2004 fylgdi eldgos í kjölfarið. Vatnshæðin í lóninu áður en hlaupið hófst núna var lægri en fyrir hlaupið 2004 og búast sérfræðingar Orkustofnunar ekki við stóru hlaupi en grannt er fylgst með framvindu mála „Við gerðum ekki ráð fyrir hlaupi á þessum tíma enda er vatnsborð frekar lágt," segir Gunnar Sigurðsson, verkfræðingur hjá Vatnamælingum Orkustofnunar í samtali við Vísir.is. Hann segir að rennsli árinnar í gær hafi verið talið álíka mikið og gott sumarrennsli og brennisteinslykt hafi fundist á Skeiðarársandi. Hann segir jafnframt að rennslið sé enn að aukast. „Það er ekkert sem bendir til þess að eldgos verði í Grímsvötnum við þetta hlaup," segir Gunnar enn fremur. Lesa meira
 
Jólamarkaður í Nesjum

Jólamarkaður í Söluskálanum í Nesjum - 05.12.2007 Desember

Það er aftur komið líf og starfsemi í söluskálann í Nesjum og verður svo fram að jólum. Kristjana Jensdóttir opnaði þar jólamarkað um helgina sl. og verður opið alla daga frá kl. 16-20. Vöruval er af ýmsu tagi svo sem fatnaður og alls konar jólaskraut og m.a. geta þeir sem vilja skreyta jólatrén sín upp á amerískan máta fengið allt til þess þar en eins og flestir vita er það skreytingarefni mikið frábrugðið þessu sem við eigum að venjast. Kristjana hefur verið með veitingasölu í Nesjaskála sl. tvö sumur og sagði að sér hefði fundist alveg ótækt að ekkert væri þar um að vera í jólamánuðinum svo hún ákvað að setja upp þennan jólamarkað enda aldrei of mikið af slíku hjá okkur fyrir jólin. Lesa meira
 
Færeyingar í heimsókn

Áhugaverd kunningarferð - 03.12.2007 Desember

Umboð fyri Sunda Kommunu við borgarstjóranum á odda vitjaðu mikudagin og hósdagin Hornafjarðar Kommunu (Sveitarfélagið Hornafjörður) í Íslandi. Endamálið við ferðini var at kunna seg um gongdina í Hornafjarðarøkinum, nú meira enn tíggju ár eru liðin síðan kommunusamanleggingarnar byrjaðu har. Eins og í Sunda Kommunu vóru tað seks kommunur, ið løgdu saman, tó í tveimum umførum. Í økinum búgva tilsamans 2300 fólk, harav tey 1700 í Høfn. Mikukvøldið bjóðaði Sveitarfélagið til døgverða, og hósdagin var vitjað á ymsum stovnum í kommununi. Lesa meira
 
Laurey Helgadóttir

Suðursveitardagur, Bókamessa-Fjölskyldujólahlaðborð - 01.12.2007 Desember

Annan des. Fyrsta sunnudag í aðventu verða Suðursveitungar í sannkölluðu jólaskapi og verður boðið uppá tvær fjölskylduhátíðir, á Þórbergssetri og Smyrlabjörgum. Hátíðin á Þórbergssetri hefst kl. 14.00 með bókamessu þar sem m.a. Pétur Gunnarsson, Hjörleifur Guttormsson og Soffía Auður Birgisdóttir lesa upp úr nýjum bókum og fjallað verður um efni þeirra. Hjörleifur Guttormsson kynnir bókina Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár eftir Jack Ives og einnig kynnir Menningarmiðstöð Hornafjarðar nýútkomna bók Sigurðar Björnssonar Sótt fram. Bæði þessi rit hljóta að höfða sérstaklega til þeirra sem vilja fræðast um sögu Austur- Skaftafellssýslu og mannlíf hér áður fyrr. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica