Flutningarskip sem var vélavana komið í gang
Flutningarskipið sem steytti á sker í morgun komið í gang og stefnir austur á land, líklegas í Berufjörð þar sem kafarar munu skoða skemmdir. Siglning þangað getur tekið 5-6 kl.st. Björgunarskipið Ingibjörg fylgir skipinu áleiðis þar til varðskip Landhelgisgæslunnar mætir skipunum og mun varðskipið fylgja Axel til hafnar. Klukkan 08:20 barst Vaktstöð siglinga/Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð vegna flutningaskipsins Axel sem strandað hafði á Borgeyjarboða við Hornafjarðarós. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Ingibjörg frá Hornafirði ásamt lóðsbáti Hornafjarðarhafnar fóru tafarlaust á staðinn. Klukkan 08:24 tilkynnir Ingibjörg að skipið sé laust af skerinu. Aðalvél skipsins var ekki gangfær og bógskrúfurými fullt af sjó.
Axel er 2500 tonna frystiskip, byggt árið 1989. Skráður eigandi þess er Dregg ehf en skipið er skráð á eyjunni Mön. Áhöfn skipsins, 11 manns, er öll íslensk.





Skrifa athugasemd