Námskeið í gerð aðventukransa og kertaskreytinga
Hafdís Eiríksdóttir hjá Blóm og Bróderi heldur námskeið annað kvöld (miðvikudagskvöldið 27.nóv) á vegum Þekkingarnets Austurlands í gerð aðventukransa og kertaskreytinga. Að sögn Hafdísar þá mun hún kenna undirstöðuatriði í hvernig á að vefja aðventukrans með greni, hnýta mismunandi slaufur og gera kertaskreytingar. Þátttakendur geta haft með sér gamla aðventukransinn sinn sem þarf kannski að lappa uppá. Gott er að taka með sér kertadiska, blómapotta, skraut og kerti til að vinna með, sem verður líka hægt að kaupa borða og skraut á staðnum. Hafdís vildi minna þátttakendur sem eiga trjáklippur, endilega að taka þær með sér. Námskeiðið kostar 5.000 kr. og innifalið er greni og vír á einn krans.
Fyrir þá sem hafa áhuga þá er skráning í síma 478 1595 og 471 2838. Námskeiðið hefst kl. 19:30 og sendur til kl. 22. Það fer fram í handavinnustofunni í gamla Vöruhúsinu (Jöklasýning), gengið inn við Svalbarð.





Skrifa athugasemd