Minningartónleikar um Birgi Grétarsson
F. 31. mars 1967 – d. 27. október 1987
Minningartónleikar um Birgi Grétarsson verða haldnir í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þann 30. nóvember næstkomandi kl. 20.30, en tuttugu ár eru nú liðin frá því hann lést eftir hörmulegt vinnuslys aðeins tvítugur að aldri. Birgir var sonur Agnesar Eymundsdóttur og Grétars Geirs Guðmundssonar. Birgir, sem var verkfræðinemi við HÍ, lét eftir sig barnshafandi unnustu; Hönnu Björk Guðjónsdóttur. Bæði hún og Björg dóttir þeirra sem nú stendur á tvítugu, munu koma fram á tónleikunum. Eftirfarandi listamenn koma fram á tónleikunum: Ragnar Eymundsson, Björg Birgisdóttir, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Ingi Valur Grétarsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Óskar Guðjónsson, Ómar Guðjónsson, Tómas R. Einarsson, Matthías Hemstock, Flensborgarkórinn, Antonia Hevesi og Jónas Þórir. Kynnir er Pétur Óskarsson. Eins og þessi upptalning gefur til kynna verður efnisskrá tónleikanna fjölbreytt og verður spennandi að sjá hvernig dívur, djassgeggjarar og popparar eiga saman á sviði.
Tónleikarnir eru rúm klukkustund að lengd og aðgangseyrir er 1.500 krónur. Mun allur ágóði tónleikanna renna til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, í minningu Sigríðar Grétarsdóttur systur Birgis, sem lést sökum hjartagalla aðeins mánaðargömul árið 1966.
Tónleikarnir eru opnir öllum og er gestum boðið að þiggja kaffiveitingar í skátaheimili Hraunbúa við Hjallabraut að þeim loknum. Aðstandendum tónleikanna þætti vænt um að sjá ættingja og vini á þeim.
Miðasala verður við dyrnar, en einnig má kaupa miða í forsölu í Tónabúðinni, Skipholti 21 í Reykjavík.





Skrifa athugasemd