Trölli að verða tilbúinn
Dýpkunarfélagið Trölli ehf sem er í eigu Rósabergs og Vélsmiðjunnar Foss keypti fyrir nokkru síðan dýpkunarprammann Trölla af Landsvirkjun og hefur verið unnið að viðgerð og endurbótum á honum. Nú er Trölli að verða tilbúinn til starfa og verður settur á flot einhvern næsta dag þar sem hann kemur í stað dýpkunarprammans Soffíu við uppgröft úr innsiglingunni í Hornafjarðarhöfn. Landsvirkjun keypti Trölla 1975 og var hann notaður við dælingu að inntakslóninu fyrir Búrfellsvirkjun og voru meðal afköst um 400 rúmmetrar af þurrefni á klst. Síðast var pramminn notaður við Þórisós og á Þórisvatni um 1997 þar sem hann bilaði og sökk. Mikið verk var að ná prammanum upp enda á annað hundrað tonn en allt tókst vel til og nú er Trölli að komast í gagnið aftur.
Í upphafi voru 3 díselvélar í prammanum en síðar var þeim skipt út og í staðinn settir 2 rafmagnsmótorar 800kw og 200kw. tengdir rafmagnskapli úr landi, einnig eru notaðir litlir dælumótorar. Eiríkur Jónsson í Fossi segir prammann henta vel inni á höfnum og á skurðum en hann þoli ekki öldur, til þess þyrfti mikið meiri búnað og svona útbúinn getur hann grafið niður á 12 m dýpi en til eru lengingar á hann til að grafa miður á 25. dýpi. Hér í höfninni er talað um að grafa niður á 7,5 m dýpi og dæla upp um 25 þús.rúmm. núna og öðru eins magni eitthvað seinna.
Starfsmenn frá Rósaberg komu með sín tól og tæki til að koma prammanum að höfninni þar sem verið er að leggja lokahönd á útbúnað hans.





Skrifa athugasemd