Húseignir Nesjaskóla auglýstar til sölu
Í síðustu viku auglýstu Ríkiskaup húseignir Nesjaskóla til sölu. Í auglýsingunni kemur fram að um er að ræða einbýlishús, heimavistarskólahúsnæði, kennslustofur, mötuneyti, 4 íbúðir, og geymslur. Heildar flatarmál eignanna er samkv. FMR 2.429m2. Stærð lóðar er um 7.700m2 og er leigulóð. Fasteignamat eignanna er kr. 54.197.000,- og brunabótamat kr. 324.800.000,- Þeir sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar hjá Stefáni Ólafssyni og Birni Imsland í síma 470 8000 eða hjá Ríkiskaupum í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 11. desember 2007 þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska.





Skrifa athugasemd