Nóvember
Slysavarnadeildin færði leikskólum góða gjöf
Í dag færði slysavarnadeildin Framtíðin á Höfn leikskólum staðarins mjög góða gjöf. Gjöfin heitir eyra og er tæki til að meta háfaða. Tækið virkar þannig að það er sett inní herbergi og sett í gang það logar grænt ljós þegar háfaða mengun er í góðu lagi þegar það fer að vera við hættu mörk þá kemur gult og þegar háfaði er komin yfir hættumörk kemur rautt ljós. Starfsfólk Lönguhóla vill koma á framfæri þökkum til slysavarnardeildarkonum fyrir gjöfina.
Það var Margrét Ingólfsdóttir sem tók á móti gjöfinni frá þeim Slysavarnarkonum Þorbjörgu Helgadóttur, Ingu Kristínu Sveinbjörnsdóttur og Guðrúnu Ósk Óskarsdóttir





Skrifa athugasemd