Nóvember
Stekkakelda
Stekkakelda
Stekkakelda
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

14.11.2007 Nóvember

Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs staðsett við Stekkakeldu

Eitt af því sem tilheyrir þjóðgarði er gestastofa, en þar er tekið á móti ferðamönnum og aðgengi er að upplýsingum um þjóðgarðinn. Rætt hefur verið um staðsetningu gestastofu hér í sveitarfélaginu og er svo komið að á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar sem haldinn var í vikunni lá fyrir tillaga frá Svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem fram kemur tillaga svæðisráðsins um að gestastofa rísi á svæðinu við Stekkakeldu, nánar tiltekið á Stekkanesi. Svæðisráðið fjallaði einnig um þann möguleika að staðsetja gestastofu á Leiðarhöfða sem er við enda Sandbakkavegar á Höfn. Sú staðsetning hefur þann kost að vera í miklu návígi við aðra þjónustu en samrýmist ekki þeirri stefnumörkun sem lá til grundvallar lögum um Vatnajökulsþjóðgarð sem samþykkt voru af Alþingi vorið 2006.

Ennfremur var það ríkjandi skoðun fulltrúa í svæðisráði að þröngt yrði um gestastofu á Leiðarhöfða. Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs telur að staðsetning gestastofu á Stekkanesi hefur ótvíræða kosti í för með sér að mati svæðisráðsins.
Stekkanes er um miðja vegu á milli golfvallarins á Silfurnesi og Hafnarness. Útsýni til allra átta stórkostlegt og aðgengi að nesinu er í góðu lagi. Einnig er nægt rými fyrir bílastæði á nesinu. Þá hefur þessi staðsetning þann kost að vera ekki inni í íbúabyggð en í ágætri nálægð við byggðina á Höfn. Svæðisráðið trúir því að þannig geti stofan sómt sér vel og verið áberandi kennimerki þjóðgarðsins en jafnframt aukið umferð ferðamanna til Hafnar.

Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu fyrir sitt leyti og vísar henni til byggingar- og skipulagsnefndar.

 

Teikning em sýnir staðsetningu miðað við kort (hér)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica