Nóvember
Busavigsla FAS 2007
Busavigsla FAS 2007
Busavigsla FAS 2007 (úr myndasafni)

13.11.2007 Nóvember

FAS mun bjóða upp á þrjá nýja áfanga á vorönn 2008

Á vorönn 2008 mun Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu bjóða upp á þrjá nýja áfanga sem eru afrakstur samvinnu við ólíka aðila. Í fyrsta lagi er það áfangi sem er rannsóknaráfangi í líffræði. Hann verður kenndur í samvinnu við Hornafjarðarsetur Háskóla Íslands. Þar stendur til að rannsaka gróðurframvindu á Skeiðarársandi og við jökla á Suðausturlandi. Gert er ráð fyrir að áfanginn byrji með fyrirlestrum í apríl. Úrvinnslu gagna verður lokið næsta haust. Í öðru lagi er boðið upp á áfanga í ferðaþjónustu. Áfanginn verður kenndur í samvinnu við Menntaskólann í Kópavogi. Frumkvæði að þessum áfanga kemur frá ferðaþjónustuaðilum í sveitarfélaginu Hornafirði. Þrjú meginviðfangsefni eru í þessum áfanga: móttaka á gestum, þjónusta í veitingasal og þrif á herbergjum.

Í þriðja lagi verður væntanlega boðið upp á áfanga sem er starfsnám í félagsmiðstöð og er ætlaður nemendum á félagsfræðabraut. Þessi áfangi er í samvinnu við æskulýðsfulltrúa sveitarfélagsins. Hugmyndin er að nemendur komi til með að vinna í Þrykkjunni samhliða námi í áfanganum.

Vefur FAS

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica