Nóvember
Lego_003
Lego_003

10.11.2007 Nóvember

Sigruðu FIRST LEGO league keppnina

Lið Grunnskóla Hornafjarðar Ísjakarnir sigruðu í dag FIRST LEGO league keppnina sem fram fór í Öskju í Sturlugötu Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands. Að sögn Eiríks Hanssonar liðsstjóra þá mun sigurinn þýða að liðið heldur utan á Evrópumót í maí á næsta ári og mun undirbúningur hefjast um leið og heim er komið. Alls voru það 20 lið af landinu öllu tóku þátt í keppninni sem var hörkuspennandi og var fullt hús af áhorfendum sem fylgdust með þessari skemmtilegu keppni.

Í sigurliðinu eru Anna Regína Heiðarsdóttir, Dóra Björg Björnsdóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Guðmundur Kristján Sigurðsson, Magnús Ágúst Magnússon, Maríus Sævarsson, Perla Sólveig Reynisdóttir, Siggerður Aðaslteinsdóttir, Vigdís María Borgarsdóttir og Þorgils Snorrason sem öll eru í 7. bekk.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica