Hornfirðingar sigruðu í sjónvarpsþættinum Útsvari
Í hörkuspennandi þætti af sjónvarpsþættinum Útsvari á RUV í gærkvöldi sigruðu Hornfirðinarnir lið Seltjarnarnes með 66 stigum gegn 48 og má því segja að þetta hafi verið yfirburðarsigur. Liðið var skipað þeim Sigurði Hannessyni, Lenu Hrönn Marteinsdóttur og Grétari Örvarssyni. Þrátt fyrir að á tímabili hallaði stigafjöldinn á Hornfirðingana var enginn vafi allan tíman hverjir stæðu uppi sem sigurvegarar. Hornfirðingarnir munu halda áfram í aðra umferð. Útsvar er nýr þáttur þar sem 24 sveitarfélög keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Þættirnir eru í beinni útsendingu á föstudagskvöldum. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur B. Guðnason og útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Hægt er að horfa á vefupptöku af sjónvarpsþættinum (hér)





Skrifa athugasemd