Nóvember
Heyrúllubaggahjónin
Heyrúllubaggahjónin (úr myndasafni)
Heyrúllubaggahjónin (úr myndasafni)
Mynd 2 af 2
1 2

08.11.2007 Nóvember

Heyrúlluplast til Kína

Förgun á plasti sem notað er utanum heyrúllur hefur verið vandamál bænda og búenda því erfitt hefur verið að koma því í endurvinnslu. Nú sér fram á bjartari tíma í þessum efnum og nýlega fór Marteinn Gíslason hjá Funa ehf. um Hornfirskar sveitir og safnaði saman um 20 tonnum af heyrúlluplasti sem síðan var sent til Sagaplasts í Reykjavík Að sögn Hauks Inga Einarssonar framkvæmdastjóra umhverfis- og tæknisviðs verður heyrúlluplastið flutt til Kína til endurvinnslu þar sem þar fæst best verð fyrir það.

Þá er einnig verið að safna brotajárni um sveitirnar og er það Málmendurvinnslan Fura ehf. í Garðabæ sem sér um endurvinnslu þess. Fura ehf. hefur unnið að endurvinnslu brotajárns síðan 1993. Þess má geta að um 20% af brotajárni kemur frá ónýtum bílum, en einnig er töluvert um úrelda báta og gömul heimilistæki. Fyrirtækið sér jafnframt um móttöku á ónýtum rafgeymum og eru þeir sendir í endurvinnslu á Englandi. Allt efni kemur í gámum inn á svæðið, þar sem það er vigtað og skráð. Síðan er því sturtað á sérstakt vinnsluplan þar sem starfsmenn flokka efnistegundir. Hakkavél hakkar niður allt brotajárn og flokkar í ákveðinn salla sem síðan er fluttur út til Spánar sem hráefni fyrir stálverksmiðjur þar í landi. Á fyrsta starfsári Furu ehf. var tekið við alls 13.000 tonnum af brotajárni, en árið 2000 var sú tala komin upp í 28.000 tonn og hefur haldist þar um bil síðan.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica