Nóvember
Heimsókn í Þórbergssetur
Heimsókn í Þórbergssetur
Nemendur í íslensku ásamt kennara heimsóttu Þórbergssetur (Mynd FAS)

08.11.2007 Nóvember

Nemendur í FAS heimsækja Þórbergssetur

Nemendur í íslensku 503 eru að lesa Íslenskan aðal eftir Þórberg Þórðarson þessa dagana. Þessa vegna þótti tilvalið að bregða sér í Suðursveitina í vikunni til að skoða Þórbergssetur og æskuslóðir Þórbergs. Þar fékk hópurinn frábærar viðtökur, Þorbjörg staðarhaldari leiddi hópinn í gegnum safnið sagði frá ýmsum leyndardómum tengdum Þórbergi og Suðursveit.

Gagnsemi safnsins kom berlega í ljós og það er frábært að geta tengt saman námið og fræðslu sem fáanleg er á svæðinu.
Bestu þakkir fyrir okkur. Íslenska 503.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica