Nóvember
Hornafjarðarhöfn
Hornafjarðarhöfn
Hornafjarðarhöfn (Mynd JST)

08.11.2007 Nóvember

Byggir þín hugmynd á samvinnu?

Í dag verður haldinn kynningarfundur í Nýheimum á vaxtarsamningi Austurlands en þessa dagana er verið að auglýsa styrki til klasasamstarfs. Vaxtarsamningur Austurlands veitir styrki til verkefna sem byggja á samstarfi (klasasamstarfi). Þar er skilyrði fyrir fjárstuðningi að viðkomandi verkefni tengist uppbyggingu klasa, svo sem stuðningi við stofnun tengslanets, fræðslu og þjálfun, rannsókna- og greiningarvinnu, ráðgjöf eða sameiginleg þróunar- og samstarfsverkefni sem metin eru í hverju tilfelli. Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana, auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.

Einnig er gerð krafa á að um mótframlag sé að ræða. Skal fjárframlag Vaxtarsamnings Austurlands ekki vera meira en 50% af heildarkostnaði verkefnis.
Veittir eru styrkir til þeirra sem styðja við markmið Vaxtarsamnings Austurlands og sviða hans, sem eru: Matvælasvið, Menningar- og ferðaþjónustusvið, Menntunar- og rannsóknasvið og iðnaðar-, tækni- og verktakasvið.

Kynningarfundurinn hefst kl. 12 í Nýheimum.

Umsóknarfrestur er til 10. desember 2007. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar er að finna á http://vaxaust.austur.is og áhugasamir geta einnig haft samband við Björk Sigurgeirsdóttur, framkvæmdastjóra samningsins, í síma 471 4525 eða á netfangið bjork@austur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica