Nóvember
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007 Úr myndasafni FAS

05.11.2007 Nóvember

Fundur um félagslíf

Í haust skipaði bæjarráð starfshóp til að gera úttekt og tillögur er varða félagslíf grunnskólanema á Hornafirði. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur og hugmyndir um með hvaða hætti félagslífi grunnskólanema í sveitarfélaginu verði best fyrir komið og um leið að vinna samantekt á núverandi fyrirkomulagi.
Starfshópinn skipa: fulltrúi tilnefndur af bæjarráði sem jafnframt er formaður, fulltrúi úr skólanefnd, æskulýðs- og tómstundaráði, nemendafélagi Grunnskóla Hornafjarðar og foreldrafélagi skólans. Starfshópurinn hefur haldið tvo fundi og á morgun þriðjudag boðar hann til almenns fundar í Sindrabæ kl. 20:00 þar sem Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri og aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands í tómstundafræðum ræðir um félagslíf barna og ungmenna og félagsmiðstöðvar.

Árni hefur m.a. skráð sögu félagsmiðstöðva á Íslandi.
Eru foreldrar grunnskólabarna sérstaklega hvattir til að sækja fundinn.
Í fundarhléi býður Þrykkjuráð upp á heitt kakó.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica