Nóvember
Fas orkuganga
Fas orkuganga
Myndarlegur hópur frá FAS (@FAS)

02.11.2007 Nóvember

Orkunotkun í Skarðsgöngu

Í síðustu viku fóru nemendur í EÐL103 ásamt kennara og aðstoðarfólki upp í Almannaskarð. Aðaltilgangurinn var að upplifa orkuhugtök eðlisfræðinnar á sjálfum sér, auk þess að njóta útivistar og einstaks landslags. Hver nemandi þurfti að finna út hvaða orku hann þurfti við að fara upp og niður Skarðið. Áður en lagt var af stað þurfti að framkvæma ýmsar mælingar og rannsóknavinnu t.d. þurfti hver einstaklingur að vigta sig. Haft var samband við Guðmund Valsson hjá Landmælingum Íslands til að fá nákvæmar upplýsingar um gildi þyngdarkraftsins sem verkar sem næst Skarðinu. Þess ber að geta að í Einarslundi er jarðstöð þar sem stundaðar eru rannsóknir meðal annars á þyngdarkrafti jarðar. Þyngarkrafturinn mælist þar 9.822652041 m/s2 en þó gætu síðustu tveir aukastafirnir breyst. Gengið var frá ákveðnum upphafspunkti og upp að útsýnisskífunni og til baka.

Mikilvægt var að vita hversu langa leið hópurinn gekk, í hvaða hvaða hæð hann fór og hversu langan tíma gangan tók. Út frá þessum upplýsingum er hægt að reikna út orkunotkun hvers og eins. Hver nemandi þarf að skila skýrslu um tilraunina þar sem hann þarf m.a. að reikna út sína eigin orkunotkun í göngunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica