Nóvember
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
Við Skriðuklaustur Stjórn þjóðgarðsins ásamt svæðisráði á norðuaustursvæði. F.v. Böðvar Pétursson, Elín Heiða Valsdóttir, Magnhildur Björnsdóttir, Þórunn Pétursdóttir, Hilmar J. Malmquist, Magnús Tumi Guðmundsson, Björn Ingi Jónsson, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Rúnar Þórarinsson, Björn Ármann Ólafsson, Skarphéðin Þórisson, Skúli Björn Gunnarsson, Anna Kristín Ólafsdóttir, Þórhallur Þorsteinsson, Magnús Hallgrímsson, Hjalti J. Guðmundsson.

02.11.2007 Nóvember

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarð fundar á Skriðuklaustri

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hélt annan fund sinn í síðustu viku. Fundurinn var haldinn að Skriðuklaustri og hann sóttu bæði aðalmenn og varamenn í stjórninni. Einnig var fundað sérstaklega með svæðisráði garðsins á norðaustursvæði (svæði II). Til umfjöllunar voru drög að framkvæmda- og rekstraráætlunum þjóðgarðsins fyrir árið 2008. Einnig var rætt um væntanlega arkitektasamkeppni um hönnun fjögurra nýrra gestastofa innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá ákvað stjórnin að ráðast í samkeppni um einkennismerki garðsins. Næsti stjórnarfundur verður haldinn á Höfn þann 16. nóvember.

Fulltrúar okkar í stjórn þjóðgarðsins eru Hjalti Þór Vignisson, aðalmaður og Björn Ingi Jónsson, varamaður,

Heimasíða umhverfisráðuneytisins um Vatnajökulsþjóðgarð (hér)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica