Nóvember

Ágústa Arnardóttir

Verður í Miðbæ með töskulínu sem hún hefur hannað og framleitt. - 28.11.2007 Nóvember

Á jólamarkaðinum sem verður í Miðbæ næstu helgi mun Ágústa Margrét Arnardóttir hönnuður kynna og verða með til sölu töskulínu sem hún hefur hannað og framleitt. Ágústa rekur fyrirtækið GUSTA DESIGN Ágústa útskrifaðist frá Iðnskólanum í Hafnarfirði sem stúdent af listnámsbraut, hönnunarsviði árið 2005, lærði svo skó- og fylgihlutahönnun í Istituto Europeo di Design á Ítalíu árið 2006, þar sem hún fékk hæstu mögulegu einkunn fyrir tösku- og hatta hönnun. Einnig hefur Ágústa tekið ýmis námskeið t.d í virtum skóla í London. En segir þó að flest svona hönnunarvinna komi að sjálfu sér og með mikilli æfingu, allt nám er rosalega góður grunnur en aðalatriðið er að vera alltaf að þróa sig áfram og finna leið til að útfæra hugmyndir sínar. “Nú er ég komin með grunninn og rosalega góðar vélar, þannig að nú get ég farið að gera allt sem mér dettur í hug, mér finnst sníða gerðin skemmtilegust og er með svo mikið af hugmyndum sem mig hlakkar til að fara að vinna. Þetta gerir það að verkum að ég geri aldrei margar töskur í sama sniði, heldur er alltaf að koma með eitthvað nýtt. Lesa meira
 
Síldarvertíð 2007

Skip Skinneyjar Þinganess hafa veitt um 20 þúsund tonn af síld - 27.11.2007 Nóvember

Um 20 þúsund tonn af síld hefur verið landað hjá Skinney Þinganesi það sem af er síldarvertíðar. Búið er að bræða um 12 þúsund tonn af síld en þar vinna 10 manns á 12 tíma vöktum.Skinney Þinganes á eftir veiðiheimild fyrir 11-12 þúsund tonnum af síld og að sögn Gunnars Ásgeirssonar er vonast til að helmingur þess náist fyrir jól. Lesa meira
 
Velavana_skip_021

Flutningaskipið Axel heldur til hafnar á Fáskrúðsfirði - 27.11.2007 Nóvember

Eftir samráð Landhelgisgæslu Íslands, Umhverfisstofnunar, flokkunarfélags skipsins ásamt skipstjóra þess og útgerð hefur verið ákveðið að flutningaskipið Axel sem skemmdist er það strandaði við Hornafjarðarós í morgun, haldi til hafnar á Fáskrúðsfirði. Þar verður skipið skoðað og lagt mat á skemmdir og sjóhæfi skipsins. Axel siglir nú, undir eigin vélarafli en í fylgd varðskips og eru skipin væntanleg til Fáskrúðsfjarðar um klukkan 17:oo Lesa meira
 
Velavana_skip_023

Flutningarskip sem var vélavana komið í gang - 27.11.2007 Nóvember

Flutningarskipið sem steytti á sker í morgun komið í gang og stefnir austur á land, líklegas í Berufjörð þar sem kafarar munu skoða skemmdir. Siglning þangað getur tekið 5-6 kl.st. Klukkan 08:20 barst Vaktstöð siglinga/Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð vegna flutningaskipsins Axel sem strandað hafði á Borgeyjarboða við Hornafjarðarós. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Ingibjörg frá Hornafirði ásamt lóðsbáti Hornafjarðarhafnar fóru tafarlaust á staðinn. Klukkan 08:24 tilkynnir Ingibjörg að skipið sé laust af skerinu. Aðalvél skipsins var ekki gangfær og bógskrúfurými fullt af sjó. Lesa meira
 
Blóm & Bróderí

Námskeið í gerð aðventukransa og kertaskreytinga - 27.11.2007 Nóvember

Hafdís Eiríksdóttir hjá Blóm og Bróderi heldur námskeið annað kvöld (miðvikudagskvöldið 27.nóv) á vegum Þekkingarnets Austurlands í gerð aðventukransa og kertaskreytinga. Að sögn Hafdísar þá mun hún kenna undirstöðuatriði í hvernig á að vefja aðventukrans með greni, hnýta mismunandi slaufur og gera kertaskreytingar. Þátttakendur geta haft með sér gamla aðventukransinn sinn sem þarf kannski að lappa uppá. Gott er að taka með sér kertadiska, blómapotta, skraut og kerti til að vinna með, sem verður líka hægt að kaupa borða og skraut á staðnum. Hafdís vildi minna þátttakendur sem eiga trjáklippur, endilega að taka þær með sér. Námskeiðið kostar 5.000 kr. og innifalið er greni og vír á einn krans. Lesa meira
 
Birgir_Gretarsson

Minningartónleikar um Birgi Grétarsson - 23.11.2007 Nóvember

Minningartónleikar um Birgi Grétarsson verða haldnir í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þann 30. nóvember næstkomandi kl. 20.30, en tuttugu ár eru nú liðin frá því hann lést eftir hörmulegt vinnuslys aðeins tvítugur að aldri. Birgir var sonur Agnesar Eymundsdóttur og Grétars Geirs Guðmundssonar. Birgir, sem var verkfræðinemi við HÍ, lét eftir sig barnshafandi unnustu; Hönnu Björk Guðjónsdóttur. Bæði hún og Björg dóttir þeirra sem nú stendur á tvítugu, munu koma fram á tónleikunum. Eftirfarandi listamenn koma fram á tónleikunum: Ragnar Eymundsson, Björg Birgisdóttir, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Ingi Valur Grétarsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Óskar Guðjónsson, Ómar Guðjónsson, Tómas R. Einarsson, Matthías Hemstock, Flensborgarkórinn, Antonia Hevesi og Jónas Þórir. Kynnir er Pétur Óskarsson. Eins og þessi upptalning gefur til kynna verður efnisskrá tónleikanna fjölbreytt og verður spennandi að sjá hvernig dívur, djassgeggjarar og popparar eiga saman á sviði. Lesa meira
 
Skúta í Hornafjarðarhöfn

Hollendingar sigldu stolinni skútu til Hornafjarðar - 21.11.2007 Nóvember

„Um er að ræða þjófnað á skútu frá Þýskalandi sem siglt var hingað til lands," segir lögreglan á Hornafirði í samtali við vísir.is en skúta hefur verið kyrrsett í Hornafjarðarhöfn. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er ekki vitað hvort hugsanlegir kaupendur séu hér á landi en tollgæslan er að skoða málið. Það er Ríkislögreglustjóri í samstarfi við Interpol sem eru með málið að sögn lögreglunnar á Hornafirði. Það voru Hollendingar sem sigldu skútunni hingað og eru þeir vanir ferjusiglarar að sögn lögreglunnar. Ekki er uppi grunur að fíkniefni séu um borð en skútan hefur verið kyrrsett og er því ekki að fara neitt. Skútan er nokkuð stór og skaut lögreglan á að hún væri um 12-13 metrar að lengd og fjórir metrar á breidd. Lesa meira
 
Dýpkunarpramminn Trölli

Trölli að verða tilbúinn - 20.11.2007 Nóvember

Dýpkunarfélagið Trölli ehf sem er í eigu Rósabergs og Vélsmiðjunnar Foss keypti fyrir nokkru síðan dýpkunarprammann Trölla af Landsvirkjun og hefur verið unnið að viðgerð og endurbótum á honum. Nú er Trölli að verða tilbúinn til starfa og verður settur á flot einhvern næsta dag þar sem hann kemur í stað dýpkunarprammans Soffíu við uppgröft úr innsiglingunni í Hornafjarðarhöfn. Landsvirkjun keypti Trölla 1975 og var hann notaður við dælingu að inntakslóninu fyrir Búrfellsvirkjun og voru meðal afköst um 400 rúmmetrar af þurrefni á klst. Síðast var pramminn notaður við Þórisós og á Þórisvatni um 1997 þar sem hann bilaði og sökk. Mikið verk var að ná prammanum upp enda á annað hundrað tonn en allt tókst vel til og nú er Trölli að komast í gagnið aftur. Lesa meira
 
Nesjaskóli

Húseignir Nesjaskóla auglýstar til sölu - 19.11.2007 Nóvember

Í síðustu viku auglýstu Ríkiskaup húseignir Nesjaskóla til sölu. Í auglýsingunni kemur fram að um er að ræða einbýlishús, heimavistarskólahúsnæði, kennslustofur, mötuneyti, 4 íbúðir, og geymslur. Heildar flatarmál eignanna er samkv. FMR 2.429m2. Stærð lóðar er um 7.700m2 og er leigulóð. Fasteignamat eignanna er kr. 54.197.000,- og brunabótamat kr. 324.800.000,- Þeir sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar hjá Stefáni Ólafssyni og Birni Imsland í síma 470 8000 eða hjá Ríkiskaupum í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði. Lesa meira
 
Dagur íslenskrar tungu 2007

Þulur, sögur og leikrit í leikskólunum á degi íslenskrar tungu - 17.11.2007 Nóvember

Leikaskólarnir Lönguhólar og Krakkakot létu sitt ekki eftir liggja með að taka þátt í Degi íslenskrar tungu, Leikskólarnir fengu í heimsókn börnum úr 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar, sem komu og lásu fyrir þau. Lesturinn tókst vel í alla staði og var mikil kátína meðal leikskólabarna að fá krakkana úr grunnskólanum í heimsókn. Eftir að þau voru búin að lesa söfnuðust allir nemendur leikskólans saman inn í sal leikskólanna og léku leikrit fyrir hvort annað og voru með ýmsar uppákomur. Yngstu börnin á Krakkakoti stigu á sviðið og sungu lag við ljóð Jónasar Hallgrímssonar ,,buxur, vesti, brók og skór" með tilheyrandi táknum. Elstu börnin fóru með þuluna ,,hann Kalli átti káta mús" sem er ein af þulunum sem þau hafa verið að læra í Markvissri málörvun og á eftir sungu allir á Mánadeild saman lagið ,,á íslensku má alltaf finna svar" við texta Þórarins Eldjárn. Lesa meira
 
Lunar-bow-PD265

Skinney Þinganes kaupir nýtt skip - 16.11.2007 Nóvember

Skinney Þinganes hefur fest kaup á uppsjávarveiðiskipinu Lunar Bow PD265, sem var í eigu Lunar Fishing í Skotlandi. Skipið er smíðað í Noregi árið 2000 og er útbúið á tog og nótaveiðar. Burðargeta þess er um 1540 tonn í kælitönkum en skipið er rúmlega 61 m. að lengd og um 13 metra breitt og aðalvél skipsins um 7400 hestöfl. Þess má geta að Jóna Eðvalds SF-200 skip Skinneyjar-Þinganess er um 60 metra langt, 13 metra breitt og er 1221 brúttótonn, svona rétt til að átta sig á stærð Lunar Bow. |nl| Lesa meira
 
Gjöf frá Slysavarnardeildinni

Slysavarnadeildin færði leikskólum góða gjöf - 14.11.2007 Nóvember

Í dag færði slysavarnadeildin Framtíðin á Höfn leikskólum staðarins mjög góða gjöf. Gjöfin heitir eyra og er tæki til að meta háfaða. Tækið virkar þannig að það er sett inní herbergi og sett í gang það logar grænt ljós þegar háfaða mengun er í góðu lagi þegar það fer að vera við hættu mörk þá kemur gult og þegar háfaði er komin yfir hættumörk kemur rautt ljós. Starfsfólk Lönguhóla vill koma á framfæri þökkum til slysavarnardeildarkonum fyrir gjöfina. Lesa meira
 
Swissneskur ferðalangi á Íslandi

Ljósmynd Hlyns Pálma -Svissneskur ferðalangi á Íslandi- komin í úrslit - 14.11.2007 Nóvember

Svissneskur ferðalangur á íslandi, sem er ljósmynd Hlyns Pálmassonar, komst í úrslit í Sumarsmellurinn 2007 sem er ljósmyndasamkeppni Veðurstofu Stöðvar 2 og Visir.is. Eins og sjá má á myndinni þá "ferðalangurinn" að hoppa með svissneska fánann. Hlynur stundar núna nám í ljósmyndun í Kaupmannahöfn þar sem hann býr ásamt unnustu sinni Hildi Ómarsdóttur. Fyrir þá sem ekki þekkja hann þá er hann sonur Pálma Guðmundssonar og Elínar Magnúsdóttur. Það eru ekki bara ljósmyndir sem Hlynur er að fást við, því stuttmynd hans "no name 1#" var valin til sýningar í London á stuttmyndahátíð og síðan verður hún aftur sýnd í Bandaríkjunum í desember. Hornfirðingar bíða spenntir eftir frumsýningu stuttmyndar hans "post it" sem verður sýnd verður í Nýheimum milli jóla og nýárs ásamt öðrum myndum sem Hlynur hefur gert. Lesa meira
 
Stekkakelda

Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs staðsett við Stekkakeldu - 14.11.2007 Nóvember

Eitt af því sem tilheyrir þjóðgarði er gestastofa, en þar er tekið á móti ferðamönnum og aðgengi er að upplýsingum um þjóðgarðinn. Rætt hefur verið um staðsetningu gestastofu hér í sveitarfélaginu og er svo komið að á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar sem haldinn var í vikunni lá fyrir tillaga frá Svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem fram kemur tillaga svæðisráðsins um að gestastofa rísi á svæðinu við Stekkakeldu, nánar tiltekið á Stekkanesi. Svæðisráðið fjallaði einnig um þann möguleika að staðsetja gestastofu á Leiðarhöfða sem er við enda Sandbakkavegar á Höfn. Sú staðsetning hefur þann kost að vera í miklu návígi við aðra þjónustu en samrýmist ekki þeirri stefnumörkun sem lá til grundvallar lögum um Vatnajökulsþjóðgarð sem samþykkt voru af Alþingi vorið 2006. Lesa meira
 
Busavigsla FAS 2007

FAS mun bjóða upp á þrjá nýja áfanga á vorönn 2008 - 13.11.2007 Nóvember

Á vorönn 2008 mun Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu bjóða upp á þrjá nýja áfanga sem eru afrakstur samvinnu við ólíka aðila. Í fyrsta lagi er það áfangi sem er rannsóknaráfangi í líffræði. Hann verður kenndur í samvinnu við Hornafjarðarsetur Háskóla Íslands. Þar stendur til að rannsaka gróðurframvindu á Skeiðarársandi og við jökla á Suðausturlandi. Gert er ráð fyrir að áfanginn byrji með fyrirlestrum í apríl. Úrvinnslu gagna verður lokið næsta haust. Í öðru lagi er boðið upp á áfanga í ferðaþjónustu. Áfanginn verður kenndur í samvinnu við Menntaskólann í Kópavogi. Frumkvæði að þessum áfanga kemur frá ferðaþjónustuaðilum í sveitarfélaginu Hornafirði. Þrjú meginviðfangsefni eru í þessum áfanga: móttaka á gestum, þjónusta í veitingasal og þrif á herbergjum. Lesa meira
 
Við Fjallsárlón

Á þeim slóðum ríkti Vatnajökull einn - 13.11.2007 Nóvember

Á síðasta fundi bæjarráðs kom fram að í ljósi umræðu um starfsstöð framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs vill bæjarráð koma eftirfarandi á framfæri: Umræða um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hefur lifað meðal íbúa í Austur-Skaftafellssýslu í um áratug. Sérstaða héraðsins byggir ekki síst á nábýli við Vatnajökul. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, skrifaði eitt sinn að það skipti ekki máli fyrir Austur-Skaftfellinga hvaða stjórnarfar ríkti í landinu, hvort það væri þjóðveldi, einveldi eða lýðveldi. Á þeim slóðum ríkti Vatnajökull einn. Saga þess byggðarlags bæri öll merki um glímu mannsins við jökulinn. Nú eru aðrir tímar. Jökullinn er tekinn að hörfa inn til landsins, tekist hefur að hemja jökulárnar með varnargörðum og tryggja greiðar samgöngur um héraðið. Nábýli við jökulinn felur núna í sér tækifæri sem íbúar vilja nýta til fullnustu. Lesa meira
 
Leið 1_2_3

Bæjarstjórn vill leið 3 en Vegagerðin leið 1 - 13.11.2007 Nóvember

Á fundi með starfsmönnum Vegagerðarinnar í gær kom fram að stofnunin mælir með að farin verði leið 1. Rökin eru þau að umhverfisáhrif þeirrar leiðar séu minnst af þeim leiðum sem eru til skoðunar, leiðin uppfylli einnig öll markmið um umferðaröryggi og greiðfærni auk þess sem hún sé verulega hagkvæmari en aðrar leiðir. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu Vegargerðarinnar ítrekar bæjarráð Hornafjarðar fyrri afstöðu sína í þessu máli. Bæjarráð telur það farsælustu lausnina í samgöngumálum Hornfirðinga til framtíðar að ákveðið verði að fara leið 3. Það er sú leið sem kemur til með að styrkja best búsetu og atvinnuskilyrði íbúanna í sveitarfélaginu. Lesa meira
 
Ráðherraheimsókn

Samgöngu- og viðskiptaráðherra heimsækja Hornafjörð - 13.11.2007 Nóvember

Á morgun miðvikudaginn 14. nóvember munu Kristján L. Möller, samgönguráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra heimsækja Hornafjörð. Þá funda þeir með bæjarstjórn og um kvöldið verður opinn fundur í Nýheimum kl. 20:00. Á þann fund eru allir íbúar sveitarfélagsins velkomnir til þess að ræða málin við ráðherrana. Samgöngumál eru Hornfirðingum, eins og öllum Íslendingum, ofarlega í huga. Nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót hefur lengi verið í umræðunni. Núverandir vegstæði og brúin yfir Hornafjarðarfljót er fyrir löngu síðan komin á síðasta snúning og mikilvægt er að framkvæmdi við nýtt vegstæði og nýja brú hefjist sem fyrst. Nú liggur niðurstaða Vegagerðarinnar fyrir og olli hún bæjarstjórn Hornafjarðar töluverðum vonbrigðum þar sem Vegagerðin er ekki sammála bæjarstjórn um það hvaða leið beri að fara. Nú er tækifæri fyrir íbúana að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við ráðherrana. Lesa meira
 
Ragnhildur Jónsdóttir

Heldur námskeið fyrir lesblinda - 13.11.2007 Nóvember

Á fimmtudag verður kynningarfundur á vegum Þekkingarnetsins á námskeiðinu Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun. Lesefni af einhverju tagi ber fyrir augu okkar nánast allan tímann sem við erum vakandi í blöðum, bókum og á skjánum. Góð lestrarfærni er forsenda áhuga á því að njóta lesefnis og fræðast af því. Hún er undirstaða almennrar menntunar og þess að nota upplýsingatækni. Talið er að lestrarörðugleikar hamli um 15% landsmanna. Lestrarörðugleikar draga úr lífsgæðum og ala á vanhæfni til að takast á við daglegt líf, nám og störf. Erfiðleikar í lestri eru einstaklingsbundnir og tekið er mið af því við skipulag námsins. Þrátt fyrir einstaklingsmun koma oft fram sameiginleg einkenni, s.s. ónákvæmur og óöruggur lestur, lítill leshraði, úthaldsleysi við lestur og röng stafsetning. Lesa meira
 
Landnemaskolinn_1

Í Landnemaskólanum er lögð áhersla á dýpra nám í íslensku - 12.11.2007 Nóvember

Nú er nýlokið námskeiðum í íslensku 1 hjá Þekkingarnetinu og luku 10 nemendur þeim áfanga og í íslensku 3 þar sem 15 nemendur luku námi. Fyrirhugað er að bjóða þeim sem lokið hafa íslensku 3 upp á nám sem hlotið hefur heitið Landnemaskólinn. Námið er einnig í boði fyrir aðra íbúa sem treysta sér til að læra á íslensku því leiðbeinendur kenna á því máli. Landnemaskólinn er sem sagt hannaður fyrir fólk af erlendum uppruna sem talar og skilur talsvert í íslensku og er tilgangur þess að auðvelda fólki að vinna og búa á Íslandi. Í Landnemaskólanum er megináhersla lögð á dýpra nám í íslensku en einnig á að auka þekkingu námsmannanna á íslensku samfélagi og atvinnulífi. Lesa meira
 
Lego_003

Sigruðu FIRST LEGO league keppnina - 10.11.2007 Nóvember

Lið Grunnskóla Hornafjarðar Ísjakarnir sigruðu í dag FIRST LEGO league keppnina sem fram fór í Öskju í Sturlugötu Náttúrufræði húsi Háskóla Íslands. Að sögn Eiríks Hanssonar liðsstjóra þá mun sigurinn þýða að liðið heldur utan á Evrópumót í maí á næsta ári og mun undirbúningur hefjast um leið og heim er komið. Alls voru það 20 lið af landinu öllu tóku þátt í keppninni sem var hörkuspennandi og var fullt hús af áhorfendum sem fylgdust með þessari skemmtilegu keppni. Lesa meira
 
Sjónvarpsþátturinn Útsvar

Hornfirðingar sigruðu í sjónvarpsþættinum Útsvari - 10.11.2007 Nóvember

Í hörkuspennandi þætti af sjónvarpsþættinum Útsvari á RUV í gærkvöldi sigruðu Hornfirðinarnir lið Seltjarnarnes með 66 stigum gegn 48 og má því segja að þetta hafi verið yfirburðarsigur. Liðið var skipað þeim Sigurði Hannessyni, Lenu Hrönn Marteinsdóttur og Grétari Örvarssyni. Þrátt fyrir að á tímabili hallaði stigafjöldinn á Hornfirðingana var enginn vafi allan tíman hverjir stæðu uppi sem sigurvegarar. Hornfirðingarnir munu halda áfram í aðra umferð. Útsvar er nýr þáttur þar sem 24 sveitarfélög keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Þættirnir eru í beinni útsendingu á föstudagskvöldum. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur B. Guðnason og útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson. Lesa meira
 
Heyrúllur

Heyrúlluplast til Kína - 08.11.2007 Nóvember

Förgun á plasti sem notað er utanum heyrúllur hefur verið vandamál bænda og búenda því erfitt hefur verið að koma því í endurvinnslu. Nú sér fram á bjartari tíma í þessum efnum og nýlega fór Marteinn Gíslason hjá Funa ehf. um Hornfirskar sveitir og safnaði saman um 20 tonnum af heyrúlluplasti sem síðan var sent til Sagaplasts í Reykjavík Að sögn Hauks Inga Einarssonar framkvæmdastjóra umhverfis-og tæknisviðs verður heyrúlluplastið flutt til Kína til endurvinnslu þar sem þar fæst best verð fyrir það. Lesa meira
 
Heimsókn í Þórbergssetur

Nemendur í FAS heimsækja Þórbergssetur - 08.11.2007 Nóvember

Nemendur í íslensku 503 eru að lesa Íslenskan aðal eftir Þórberg Þórðarson þessa dagana. Þessa vegna þótti tilvalið að bregða sér í Suðursveitina í vikunni til að skoða Þórbergssetur og æskuslóðir Þórbergs. Þar fékk hópurinn frábærar viðtökur, Þorbjörg staðarhaldari leiddi hópinn í gegnum safnið sagði frá ýmsum leyndardómum tengdum Þórbergi og Suðursveit. Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn

Byggir þín hugmynd á samvinnu? - 08.11.2007 Nóvember

Í dag verður haldinn kynningarfundur í Nýheimum á vaxtarsamningi Austurlands en þessa dagana er verið að auglýsa styrki til klasasamstarfs. Vaxtarsamningur Austurlands veitir styrki til verkefna sem byggja á samstarfi (klasasamstarfi). Þar er skilyrði fyrir fjárstuðningi að viðkomandi verkefni tengist uppbyggingu klasa, svo sem stuðningi við stofnun tengslanets, fræðslu og þjálfun, rannsókna- og greiningarvinnu, ráðgjöf eða sameiginleg þróunar- og samstarfsverkefni sem metin eru í hverju tilfelli. Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana, auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur. Lesa meira
 
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007

Fundur um félagslíf - 05.11.2007 Nóvember

Í haust skipaði bæjarráð starfshóp til að gera úttekt og tillögur er varða félagslíf grunnskólanema á Hornafirði. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur og hugmyndir um með hvaða hætti félagslífi grunnskólanema í sveitarfélaginu verði best fyrir komið og um leið að vinna samantekt á núverandi fyrirkomulagi. |nl|Starfshópinn skipa: fulltrúi tilnefndur af bæjarráði sem jafnframt er formaður, fulltrúi úr skólanefnd, æskulýðs- og tómstundaráði, nemendafélagi Grunnskóla Hornafjarðar og foreldrafélagi skólans. Starfshópurinn hefur haldið tvo fundi og á morgun þriðjudag boðar hann til almenns fundar í Sindrabæ kl. 20:00 þar sem Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri og aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands í tómstundafræðum ræðir um félagslíf barna og ungmenna og félagsmiðstöðvar. Lesa meira
 
Fas orkuganga

Orkunotkun í Skarðsgöngu - 02.11.2007 Nóvember

Í síðustu viku fóru nemendur í EÐL103 ásamt kennara og aðstoðarfólki upp í Almannaskarð. Aðaltilgangurinn var að upplifa orkuhugtök eðlisfræðinnar á sjálfum sér, auk þess að njóta útivistar og einstaks landslags. Hver nemandi þurfti að finna út hvaða orku hann þurfti við að fara upp og niður Skarðið. Áður en lagt var af stað þurfti að framkvæma ýmsar mælingar og rannsóknavinnu t.d. þurfti hver einstaklingur að vigta sig. Haft var samband við Guðmund Valsson hjá Landmælingum Íslands til að fá nákvæmar upplýsingar um gildi þyngdarkraftsins sem verkar sem næst Skarðinu. Þess ber að geta að í Einarslundi er jarðstöð þar sem stundaðar eru rannsóknir meðal annars á þyngdarkrafti jarðar. Þyngarkrafturinn mælist þar 9.822652041 m/s2 en þó gætu síðustu tveir aukastafirnir breyst. Gengið var frá ákveðnum upphafspunkti og upp að útsýnisskífunni og til baka. Lesa meira
 
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarð fundar á Skriðuklaustri - 02.11.2007 Nóvember

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hélt annan fund sinn í síðustu viku. Fundurinn var haldinn að Skriðuklaustri og hann sóttu bæði aðalmenn og varamenn í stjórninni. Einnig var fundað sérstaklega með svæðisráði garðsins á norðaustursvæði (svæði II). Til umfjöllunar voru drög að framkvæmda- og rekstraráætlunum þjóðgarðsins fyrir árið 2008. Einnig var rætt um væntanlega arkitektasamkeppni um hönnun fjögurra nýrra gestastofa innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá ákvað stjórnin að ráðast í samkeppni um einkennismerki garðsins. Næsti stjórnarfundur verður haldinn á Höfn þann 16. nóvember. Lesa meira
 
Sigurdur_Palsson

Nesjamaður sæmdur riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar - 02.11.2007 Nóvember

Það er ekki á hverjum degi sem "Nesjamaður" Þ.e. ættaður frá Hólum í Nesjum í Hornafirði er sæmdur riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar. "Mér var tilkynnt þetta ekki alls fyrir löngu. Maður fær engar nákvæmar skýringar heldur bara tilkynningu," segir rithöfundurinn Sigurður Pálsson í samtali við Fréttablaðið en Frakklandsforseti hefur ákveðið að sæma hann Chevalier de l’Ordre National du Mérite eða riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar. Sigurður þarf trúlega ekki að fara til Frakklands til að veita henni viðtöku heldur mun sendiherra Frakka hér á landi væntanlega sjá um það fyrir forsetann. „Enda skilst mér að Sarkozy sé ákaflega upptekinn maður," segir Sigurður en bætir því við að hann taki við orðunni af auðmýkt og stolti. Rithöfundurinn segist á hinn bóginn ekki vera vel að sér í orðum í þessari merkingu en honum skiljist að riddarakross frönsku heiðursorðunnar tilheyri frönsku heiðursfylkingunni. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica