Október
Þessir leika ekki fyrir dansi! Gísli Már og Óðinn eigendur Hótels Hafnar
Þessir leika ekki fyrir dansi! Gísli Már og Óðinn eigendur Hótels Hafnar

26.10.2007 Október

Bjóða gestum og gangandi í kaffi og kynna breytingar á hótelinu

Á morgun laugardag taka eigendur Hótels Hafnar á móti Austur-Skaftfellingum og öllum þeim sem vilja líta við í kaffisopa á hótelið milli 14 og 16 og skoða þær breytingar sem hafa orðið á því. Eins og flestir hafa orðið varir við þá hafa staðið yfir miklar framkvæmdir við Hótelið síðustu 18 mánuði en þeim lauk fyrir sumarið. Búið er að klæða hótelið að utan með steinflísum, öll herbergi á hótelinu hafa verið tekin í gegn en það fól í sér m.a. endurnýjun á innréttingum, gólfefnum og allt var málað. Veitingasalirnir voru einnig teknir í gegn, þar var skipt um gólfefni og húsbúnað. Fyrir utan þessar framkvæmdir á Hótelinu var bætti við 32 2ja manna herbergjum með því að kaupa fyrir á árinu Víkurbraut 11 og 13. Öll herbergin þar eru útbúin eins og á 3ja stjörnu hóteli, þ.e. með síma, baði, sjónvarpi og þráðlausri nettengingu.

Að sögn Gísla Más Vilhjálmssonar eins eiganda Hótelsins þá gjörbreyta þessar framkvæmdir og stækkun hótelsins rekstri þess, segir Gísli að með þessu sé hótelið betur í stakk búið til að takast á við stór verkefni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica