Elvar Bragi í bandið hans Bubba?
Allir þekkja Bubba Morthens. Hann stendur þessa dagana í samvinnu við Stöð tvö fyrir raunveruleikaþætti. Bubbi hefur fengið nokkra þekkta tónlistarsnillinga til að spila saman en er að leita að góðum söngvurum. Því hefur verið ákveðið að halda áheyrnarprufur á nokkrum stöðum á landinu. Síðasta miðvikudag gafst þeim sem vilja reyna að komast í bandið hans Bubba tækifæri til að spreyta sig á Neskaupsstað. Þrettán keppendur víðs vegar af Austurlandi tóku þátt og komust fjórir þeirra áfram. Einn fjórmenninganna er hann Elvar Bragi okkar sem Hornfirðingar þekkja nú orðið ágætlega úr tónlistarlífinu.
Eftir áramótin mun Stöð tvö ásamt Bubba standa fyrir sjónvarpsþáttum þar sem þeir sem komast upp úr undankeppninni sýna hvað í þeim býr. Sigurvegarinn mun hljóta plötusamning auk þriggja milljón króna styrks.
Glæsilegt Elvar Bragi - við fylgjumst með þér!!





Skrifa athugasemd