Vegur í sundur í Stafafellsfjöllum og ófært fyrir marga sumarbústaðaeigendur
Vegasambandslaust er við meirihluta sumarbústaðabyggðarinnar í Stafafellsfjöllum í Lóni eftir að Jökulsá tók stórt skarð í veginn. Mikil rigning var á þessu svæði í gær og nótt og Jökulsá orðin kolmórauð og vatnsmikil. Ekki er ljóst hvenær fært verður í innbyggðina þar sem vegurinn er ekki í umsjá Vegagerðarinnar heldur landeigenda.
Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að líkur séu á að á næsta ári verði sú breyting á reglugerð um vegi þar sem eru 30 bústaðir eða fleiri þannig að þeir lendi undir umsjá Vegagerðarinnar en þangað til sé viðhald og viðgerð í höndum landeigenda.
Vegurinn upp á Skálafellsjökul er einnig ófær þar sem brúna yfir Sultartunguá tók af í illviðrinu sl. sólarhring. Brúin var byggð 1990 og er 17 m löng. Reynir segir að reynt verði að koma á vegasambandi upp á jökul sem fyrst, en líklega mun þurfa að byggja stærri brú vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á jöklinum sem valda því að hlaup koma í ána.
Smáskriða kom á veginn í Þvottárskriðum en vegurinn lokaðist ekki og voru starfsmenn Vegagerðarinnar að vanda snöggir að hreinsa veginn.




Skrifa athugasemd