Október
Ragnar Frank við staðsetningartækið sem er á Skeiðarárjökli
Ragnar Frank við staðsetningartækið sem er á Skeiðarárjökli
Ragnar Frank við staðsetningartækið sem er á Skeiðarárjökli (@RFrank)

22.10.2007 Október

Ráðinn í stöðu lektors við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri

Um síðustu mánaðarmót lét Ragnar Frank Kristjánsson af starfi þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli og hefur hann tekið við starfi lektors við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Ragnar hefur verið þjóðgarðsvörður í Skaftafelli í tæp níu ár og er óhætt að segja að þjóðgarðurinn hefur tekið miklum breytingum til framfara og margt unnist á þessum árum sem hann hefur verið í umsjá Ragnars. Þegar fréttamaður vefsins bað hann að rifja upp það helsta sem áunnist hefur á þessum árum og hver eru stærstu verkefnin tók hann því vel eins og hans er von og vísa og sagði: Þegar litið er yfir farinn veg þessi tæp níu ár sem ég hef verið hér þjóðgarðsvörður er ég bara þokkalega ánægður með þann árangur og þá þróun sem orðið hefur hér, verkefnin hafa verið margvísleg og samskipti við heimamenn góð og eins er ánægjulegt að vita að orðstír þjóðgarðsins er góður. Ég tel að ansi miklar breytingar hafi orðið á þessum 9 árum og þrátt fyrir peningahallæri til framkvæmda þá höfum við náð ýmsum framkvæmdum sem hafa verið góðar bæði fyrir náttúruna og þá gesti sem hingað koma.

Eitt stærsta verkefnið telur Ragnar vera frágang svæðis og aðgengi að þjónustumiðstöðinni einnig þegar lagður var breiður stígur með bundnu slitlagi að Skaftafellsjökli sem gerir fötluðum og þeim sem bundnir eru hjólastólum kleift að komast að jöklinum. Síðan stígur þessi kom hefur straumur fólks að Skaftafellsjökli margfaldast. Þá hefur gamla rafstöðin í Vestragili verið endurbyggð en hún stendur á einstaklega fögrum stað, búið er að bæta og laga aðgengi og auka þannig öryggi þeirra sem fara inn í Morsárdal, einnig er búið að lagfæra og bæta mörg hundruð fermetra starfsmannaaðstöðu í Sandaseli þar sem Náttúruskólinn verður til húsa. Þessa dagana eru sjálfboðaliðar að vinna við endurbyggingu gamla hesthússins og vonir standa til að það komist undir þak í haust.

Heimamenn í Öræfum hafa sótt vinnu í þjóðgarðinn og tekið þátt í uppbyggingu hans og hafa yfir 90% af framkvæmdum í þjóðgarðinum verið unnar af fólki í heimabyggð. Erlendir sjálfboðaliðar sækjast eftir störfum í Skaftafelli og hefur þeim sem þangað koma til starfa fjölgað um 8-900 % á þessum 9 árum en fyrsta árið sem Ragnar var í Skaftafelli komu tveir hópar sem voru í 10 daga , nú eru hópar að koma frá byrjun apríl og fram í október. Valið er úr umsóknum sjálfboðaliða í þau störf sem fyrir liggja hverju sinni en sjálfboðaliði má ekki fara í störf sem verktaki getur unnið nema þá til aðstoðar.

Ragnar og fjölskylda hans hafa tekið fullan þátt í lífi og starfi í sveitinni og segir Ragnar að sú reynsla sé gott veganesti á nýjar slóðir en hann hefur þó ekki sagt alveg skilið við Öræfasveitina því hann hefur verið ráðinn til að sjá skipulag þjóðgarða og vegagerð þeim tengda.

Vefurinn óskar Ragnari og fjölskyldu hans alls hins besta á nýjum slóðum og þakkar gott samstarf á liðnum árum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica