Október
TAK_TNA
TAK_TNA
Tak_ÞNA

22.10.2007 Október

Erum við hrædd við jafnrétti?

Á miðvikudag fer fram bein útsending um stöðu jafnréttismála í gegnum FS-netið í Nýheimum undir merkjum "Erum við hrædd við jafnrétti?" "Kvenmenni í karlaveldi?". Ráðstefnan er send út frá ráðstefnusal Keilis sem er miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Reykjanesi og er það Keilir þekkingarsetur sem stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Þekkingarnet Austurlands ásamt öðrum símenntunarmiðstöðvum, atvinnuþróunarfélögum og tengslaneti kvenna á landsbyggðinni. Markmið ráðstefnunnar er að ræða stöðu jafnréttismála og leiðir til að auka jafnrétt kynjanna á vinnumarkaði. Sérstaklega verður farið ofaní hvernig uppeldi og menningarlegt umhverfi hefur áhrif á viðhorf og sjálfsmynd kynjanna.

Rætt verður hvernig bæði kynin geta unnið með gildishlaðinn viðhorf kynslóðanna til kynjahlutverka, viðhorf sem birtast í öllu okkar umhverfi frá fæðingu í sjónvarpi, tímaritum, kennslustofum, heimilum o.s.frv.

Sjá dagskrá

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica