Október
Eldvarnareftirlit og slökkviliðsstjóri heimsækja leikskólana
Eldvarnareftirlit og slökkviliðsstjóri heimsækja leikskólana
Eldvarnareftirlit og slökkviliðsstjóri heimsækja leikskólana
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

16.10.2007 Október

Undirritun samkomulags um eldvarnir og fræðslu í efstu bekkjum leikskólanna

Í gær var undirritað samkomulag á milli Leikskólanna Lönguhóla, Krakkakots og Eldvarnaeftirlits Hornafjarðar um eldvarnir og fræðslu til nemenda í efstu bekkjum leiksólanna. Samningurinn undirritaðu fyrir hönd leikskólanna leikskólastjórarnir Margrét Ingólfsdóttir og Snæfríður Svavarsdóttir og fyrir hönd slökkviliðsins var það Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri. Að sögn Borgþórs Freysteinssonar eldvarnareftirlitsmanns Sveitarfélagsins er samningurinn í grófum dráttum þríþættur, (1) að tryggja að eldvarnir í leikskólum verð ávallt eins og best verði á kosið, (2) að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað og (3) að minna foreldra og forráðamenn barna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilanna séu í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki. Við upphaf þessa verkefnisins gera aðilar með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu og að slökkviliðið afhendi ýmis gögn sem tengjast verkefninu sjálfu, krakkarnir fá með sér heim verkefnabók þar sem þau leysa ýmis verkefni með fjölskyldunni og það kemur síðan í hlut leikskólakennaranna að halda utan um verkefnabókina.

Borgþór segir að þessa verkefni sé kærkomið efni um fræðslu er varðar þennan málaflokk sem aldrei má gleymast. Hann vildi að lokum koma á framfæri þakklæti frá Slökkviliði Hornafjarðar til þeirra aðila sem koma að þessu verkefni fyrir þeirra jákvæðni og skilning.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica