Október
Tónskólinn
Tónskólinn
Tónskólinn

08.10.2007 Október

Landsmót skólalúðrasveita haldið á Höfn næstu helgi

Næstu helgi þ.e. helgina 12. til 14. október verður haldið landsmót skólalúðrasveita hér á Höfn. Þá munu koma hingað um 450 börn og um 80 stjórnendur ásamt fararstjórum. Að sögns Jóhanns Moráveks skólastjóra Tónskóla Austur-Skaftafellsssýslu þá mun fyrirkomulag mótsins verða á þá leið að búnar verða til 4 lúðrasveitir með um 100 manns í hverri og ein slagverkssveit með 45 slagverksleikurum. Þessir hópar fá 3-4 lög hver og vinna með stjórnendum föstudagskvöld og allan laugardaginn. Afrakstur æfinganna verður svo í Íþróttahúsinu á Höfn sunnudaginn 14. okt. kl. 10.00 - 12.00 þar sem sveitirnar spila verkefnin sín fyrir gesti og gangandi. Einnig kemur í heimsókn til okkar stórsveit Samma sem mun spila í lok tónleikanna. Samúel J. Samúelsson básúnuleikari hefur skapað sér stórann sess í tónlistinni hér á landi og unnið þrekvirki með að útsetja fyrir stórhljómsveit "Big band".

Hefðbundið "Big band" er skipað 18 hljóðfæraleikurum og eru flestir blásararnir ungir fyrrverandi lúðrasveitarmeðlimir sem hafa einmitt spilað á landsmótum skólalúðrasveita. Einnig er gaman að geta þess að í "Big bandinu" spila þeir bræður Ómar og Óskar Guðjónssynir, barnabörn Eymundar og Lukku.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica