Ný sundlaug fyrir jólin 2008
Í morgun voru undirritaðir samningar milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og verktaka við sundlaugarbygginguna. Með þessum undirskriftum er búið að ganga frá samningum við píparann Braga Karlsson, Rafhorn og jarðverktakann Rósaberg ehf. en eftir er að ganga frá undirskriftum við Gunnar Gunnlaugsson verktaka sem sér um uppsteypu og frágang úti og inni í húsinu en Gunnar er ekki kominn á staðinn vegna verkefnis annarsstaðar. Stefnt er á að framkvæmdir hefjist 5.nóv.nk. og áætluð verklok eru 1.des 2008.
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri umhverfissviðs segir að samkvæmt áætlun verktakanna þá sé þetta nægur tími til að ljúka verkinu og að nýja sundlaugin verði komin í gagnið fyrir jólin. Birgir Árnason hefur verið ráðinn byggingastjóri og er hans þáttur í verkinu mjög mikilvægur og meðal þess sem hann sér um er að allt sé til staðar og ekki verði tafir á verkinu vegna þess að eitthvað vanti.
Haukur Ingi segir fasta tölu á heildarkostnaði byggingarinnar vera um 250 millj.kr. og það sem eftir er að ganga frá er áætlað 30-35 millj. kr. þannig að heildarkostnaðurinn verði um 285 m.kr. og við erum mjög ánægðir með þá verktaka sem að þessu koma og ekki síst að þetta skuli allt vera heimamenn.





Skrifa athugasemd