Ríki Vatnajökuls - September
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Nýtt Þrykkjuráð í vinnuferð
      <description>Í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni er í upphafi vetrarstarfsins kosið í  Þrykkjuráð en í það eru kjörnir níu nemendur úr 8., 9., og 10. bekk, þrír úr hverjum bekk. Nýtt Þrykkjuráð skipa: 10. bekkingarnir Stefán Lárus Reynisson sem er formaður , Vilhjálmur Oddsson og Ásgrímur Arason, úr 9. bekk koma Kjalar Jóhansson varaformaður, Bjarni Friðrik Garðarsson og Halldór Þórsson sem er ritari ráðsins, úr 8. bekk sitja i ráðinu Sólveig Sveinbjörnsdóttir sem er gjaldkeri þess, Kristey Valgeirsdóttir og Finnur Ingi Jónsson. Verkefni ráðsins er að fjalla um og leggja línur að félagslífi í Þrykkjunni ásamt starfsmönnum. Fundir eru haldnir vikulega.</description>
Slátursalan hefur nú opnað
      <description>Nú er það sláturgerðin sem er ofarlega ef ekki efst á verkefnalistanum hjá fólki. Unnur Guðmundsdóttir er mætt í afurðasöluna og verður með opið frá kl. 10.00-16.00 virka daga til 20. október. Gengið er inn í afurðasöluna frá bryggjunni. Unnur vill biðja sláturkaupendur endilega að geyma ekki til síðasta opnunardags afurðarsölunnar að kaupa slátur eða að gera sínar pantanir. Unnur vildi koma þeim leiðbeiningum á framfæri til þeirra sem ekki hafa notað gervikeppina, það er að leggið þá í saltvatn í 4-5 mínútur þá verða þeir mjúkir og meðfærilegir.</description>
Voru með gæludýrin sín á Reynivöllum í sumar
      <description>Staðarhaldarinn við Jökulsárlón og eigandi Reynivalla í Suðursveit Einar Björn Einarsson hefur búið starfsfólki sínu mjög gott aðsetur á Reynivöllum þar sem þeir dvelja yfir sumartímann þegar þau vinna við Jökulsárlón.  Enda hentar það vel þar sem þeir koma oft langt að. Á Reynivöllum voru starfsmennirnir með gæludýr og var Einar Björn búinn að útbúa mjög góða aðstöðu fyrir dýrin svo að í ýmsu var að snúast þegar ekki var verið að sinna ferðamönnum á lóninu. Á Reynivöllum í sumar var því kominn hálfgerður dýragarður en þar voru risastór páfagaukur, tófa, 2 hundar, froskar og hestar og vonandi næsta sumar þegar starfsmenn flytja á ný að Reynivöllum mun tegundunum fjölga.  Þetta er búið að vera ansi líflegt og skemmtilegt heimilislíf hjá okkur á Reynivöllum segir Einar Björn og bætir við að það sé ekki ólíklegt að hann fái sér kindur til að hafa á óðalinu sínu enda aðstaðan frábær.</description>
Þekkingarnetið boðar til kynningarfundar í Nýheimum
      <description>Í vikunni mun Ragnhildur Jónsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá ÞNA heimsækja fyrirtæki á Hornafirði, Djúpavogi og á Breiðdalsvík. Tilefnið er að ræða mikilvægi símenntunnar sem stendur yfir þessa viku (24. til 30. september). Ragnhildur mun kynna verkefnið Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað, ásamt því að ræða mikilvægi læsis í daglegu lífi og kynna möguleg úrræði fyrir þá fjölmörgu sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða. Náms og starfsráðgjöf á vinnustað er heiti verkefnis sem Samtök atvinnulífsins, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvarnar í landinu vinna saman að.  Markmið verkefnisins er m.a. að hvetja starfsmenn til að bæta við sig þekkingu og færni, veita upplýsingar um möguleika í umhverfinu og aðstoða við greiningu á áhugasviði og hæfni.  Námsráðgjöf á vinnustað getur gagnast bæði starfsmönnum og fyrirtæki, þar sem markmiðið er að byggja upp þekkingu og ýta undir starfsánægju starfsmanna.</description>
Gospelnámskeið í Hafnarkirkju næstu helgi
      <description>Næstu helgi, 28.-30. september verður haldið gospelnámskeið hér á Höfn í annað sinn. Síðast, í nóvember 2005,  voru mjög góðar undirtektir og full kirkjan á lokatónleikunum. Þátttakendur voru tæplega 50 talsins, fólk á öllum aldri, bæði söngfólk úr kórunum og aðrir sem gaman hafa að því að syngja. Þess má geta að það var metþátttaka hjá körlunum, svo það var gott jafnvægi í raddskipan í kórnum. Það eru konur úr Kvennakórnum sem hafa veg og vanda af námskeiðunum með styrk frá Hótel Höfn og Sveitarfélaginu. Síðast var æft upp á Hóteli en nú verður alfarið æft í Hafnarkirkju en veitingar verða frá Hótel Höfn. Lokatónleikarnir verða í Hafnarkirkju. Gospel er létt og skemmtileg tónlist, sem er gefandi að syngja.  Þetta eru yfirleitt einfaldar raddsetningar, þrískiptar, og textar með jákvæðum boðskap. Lögð er áhersla á að syngja með tilfinningu og hafa gaman af.  Það geta allir tekið þátt svo framarlega sem þeir eru ekki raddlausir! Aðal driffjöður og kennari á námskeiðunum er Óskar Einarsson tónlistarmaður. En hver er hann? Flest okkar hafa séð hann í sjónvarpi, t.d. á tónlistarmyndabandi með Sálinni eða á árlegum jólatónleikum Fíladelfíu, svo ekki sé minnst á auglýsingu frá Húsasmiðjunni þar sem Gospelkór Reykjavíkur syngur undir stjórn hans. Blaðamaður vefsins hafði samband við Óskar og ræddi við hann um uppruna hans og tónlistarferil.</description>
Helmingi fleiri tóku þátt í ferðum Ferðafélagsins í sumar
      <description>Síðasta ferð Ferðafélags A-Skaft. sem vera átti síðustu helgi var felld niður vegna veðurs og var það síðasta ferð sumarsins. Nefndin vill þakka öllum þeim sem aðstoðuðu félagið með einum og öðrum hætti kærlega fyrir sumarið og einnig öllum þeim sem gengu með okkur. Við erum mjög ánægð með þátttökuna í ferðir sumarsins og rétt er að taka fram að það er um helmings aukning á milli ára. Einnig er gaman að sjá hvað mikil breidd er í aldri þeirra sem taka þátt í ferðunum en sá yngsti var 6 mánaða og sá elsti 80 plús. Þrjár ferðir féllu niður í sumar. Ein vegna lélegs veðurútlits, ein vegna þoku og rigningar og sú síðasta haustlitaferð í Hamarsdal, vegna snjóa og hvassviðris. Að öðru leiti vorum við mjög heppin með veður. Innan tíðar förum við svo að vinna að undirbúningi fyrir næsta sumar, sem verður með svipuðu sniði, boðið verður upp á stuttar kvöldferðir, dagsferðir á mismunandi erfileikastigum, jeppaferð, óvissuferð og kannski ævintýraferð.</description>
Mikill áhugi er á að hefja veiðar á Makríl
      <description>Nýlega fóru þrír útgerðarmenn frá Hornafirði ásamt tveim starfsmönnum Matís til Noregs til að kynna sér búnað og veiði á makríl. Mikill áhugi er á að hefja veiðar á Makríl og hafa þeir  Ómar Fransson, Unnsteinn Þráinsson og Grétar Vilbergsson búið báta sína til makrílveiða og vonast til að komast á Papagrunnið meðan von er um veiði  en þetta er ekki veiði sem stunduð er yfir vetrarmánuði. Makrílveiðarfærin eru alsjálfvirk frá því að þeim er sleppt í sjóinn og þar til makríllinn er kominn í lestina. Þetta er nánast eins og handfærarúllur og eru 40-50 krókar á hverjum slóða sem er mikið lengri en á venjulegum handfæraslóða segir Ómar Fransson sem búinn er að fara í prufutúr með nýju veiðarfærin. Þetta er algjör lúxus, maður getur bara farið og sest niður með kaffibollann og góða bók þangað til að hægt er að sigla í land með aflann.</description>
Nýráðinn framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls ehf
      <description>Rósa Björk Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls. Hún er fædd árið 1965 og er Reykvíkingur en hefur verið búsett á Vatnsenda í Kópavogi undanfarin ár. Rósa Björk hefur starfað undanfarin ár sem leiðsögumaður og bjó um tíma á Ítalíu, stundaði nám þ.á.m. í listaháskóla og hefur notað ítölskukunnáttuna í starfi sínu sem leiðsögumaður. Hún hefur starfað með öllum helstu ferðaskrifstofum landsins. Undarfarin tvö ár hefur hún einnig starfað sem auglýsingarstjóri á Eiðfaxa tímariti hestamanna og séð um Stóðhestablað Eiðfaxa undanfarin tvö ár. Rósa hefur látið til sín taka ýmiskonar frumkvöðlastarfi eins og það að hafa flutt inn fyrstu sleðahundana til Íslands af tegundinni Siberian Husky  og ræktað þá undir nafninu Heimskautaræktun, einnig hefur hún unnið að því að innleiða sleðaíþróttir og hundaskíðagöngu á Íslandi en hún hélt slíkt námskeið á Vatnajökli síðastliðið vor og fékk til þess kennara úr ítölsku ölpunum.  Hún hefur mikinn áhuga á vetrarferðamennsku og er víða óplægður akur í þeim efnum segir Rósa Björk sem hlakkar mikið til að taka að sér þetta krefjandi starf.</description>
Jöklamælingar hjá FAS
      <description>Í dag var farið í hina árlegu jöklamælingaferð að Heinabergsjökli. Að þessu sinni voru með í för sjónvarpsmenn frá franskri stöð sem eru að taka saman fréttir um hlýnun jarðar. Þeir höfðu haft spurnir af jöklamælingum skólans og fannst þær áhugaverðar. Veðrið var einstaklega gott og nóg af krækiberjum til að tína. Eins og áður er mælt út frá tveimur punktum. Á nyrðri punktinum hefur jökullinn gengið fram sem nemur um 60 metrum en á syðri punktinum hefur jökullinn hopað um eina 70 metra. Þess ber að geta að jökullinn gengur fram í lón og því geta niðurstöður verið mismunandi eftir mælipunktum.</description>
      <alt>Jöklamælingar hjá FAS</alt>
Hættu áður en þú byrjar
      <description>Nú á miðvikudaginn 19. september fá 8.- 10. bekkingar í Grunnskóla Hornafjarðar heimsókn frá Marita á Íslandi með forvarnaverkefnið “Hættu áður en þú byrjar”. Að verkefninu standa Forvarna- og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík, Reykjavíkurborg og Marita á Íslandi sem er forvarnasvið Samhjálpar. Fræðslan er ætluð nemendum í efstu bekkjum grunnskólans og eins er foreldrum þeirra boðið til sérstaks fundar um það efni sem tekið er fyrir. Aðalfyrirlesari á fræðslufundunum er Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi og auk hans kemur fulltrúi frá lögreglunni, félagsmálastjóri ofl. Sýnd er íslensk Maritamynd um raunveruleikann í heimi fíkniefnaneytenda hér á landi. Eru foreldra nemenda í 8.- 10. bekk hvattir til að koma á fræðslufundinn í bíósal á miðvikudagskvöld kl. 20:00 með Magnúsi ofl.</description>
Mótvægisaðgerðir
      <description>Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri hefur birt á bloggsíðu sinni aðra grein um mótvægisaðgerðir og er greinin hér einnig birt hér í heild sinni:   Niðurstaða rannsókna Hafrannsóknarstofnunar um ástand þorkstofnina og ákvörðun sjávarútvegsráðhera um stórfelldan niðurskurð aflaheimilda olli áhyggjum í sjávarbyggðum umhverfis landið.  Ríkisstjórnin gaf strax út að mæta ætti þessum niðurskurði með ýmsum aðgerðum en þó kom skýrt fram að ekkert kæmi í raun í staðinn fyrir þá skerðingu á aflaheimildum sem gefin var út.  Nú hefur verið lýst yfir að samgönguverkefnum verði flýtt, byggðastofnun efld og síðast kynnti fjármálaráðherra ýmsar tillögur sem miða að uppbyggingu atvinnulífs og samfélags á landsbyggðinni.  Hlutur Hornafjarðar er ágætur og er til þess fallinn að efla starfsemi Nýheima ennfrekar.  Einnig er lagðir fjármunir í mikilvæg verkefni eins og uppbyggingu ferðaþjónustu og netvæðingu sveitanna er flýtt.</description>
      <alt>Hjalti Þór Vignisson</alt>
Metaðsókn í framhaldsskólann
      <description>Nú er skráningu í Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu á haustönn að mestu lokið og orðið ljóst að nemendur hafa aldrei verið fleiri. Núna eru um 360 nemendur skráðir þar af eru tæplega 170 í starfsnámi og ríflega 190 í bóknámi. Langflestir eru skráðir í 30 brl. skipstjórnarnámið eða um 130 manns sem koma víðs vegar af landinu og einhverjir þeirra eru búsettir erlendis. Á sjúkraliðabraut eru 26 skráðir og á vélstjórnarbraut annars stigs 13 nemendur. Auk þess eru um 20 nemendur víðsvegar um Austurland sem verða á félagsliðabraut en hún er eins og sjúkraliðabrautin samstarfsverkefni framhaldsskólanna á Austurlandi.</description>
      <alt>FAS</alt>
Hornfirðingar læra að búa til Sushi
      <description>Að venju þá er mikið um að vera hjá Þekkingarneti Austurlands og úrval námskeiða hefur aldrei verið meir. Nú gefst Hornfirðingum m.a. tækifæri á að læra að búa til sushi undir stjórn Chiharu Kawai. Chiharu er er fædd og uppalin í Yokohama í Japan en hefur búið á Hornafirði í 6 ár og meðal annars lokið stúdentsprófi frá FAS.  Sushi er þjóðréttur Japans og á sér yfir 130 ára langa sögu. Í sushi er lítil fíta en mikið er notað af grænmeti og hráum fiski sem er mjög hollur sem gefur manni mikla orku. Sushinámskeiðið hefst laugardaginn 15. september og verður kennt í eldhúsi Heppuskóla. Að sögn Ragnhildar Jónsdóttur verkefnisstjóra  hjá Þekkingarnetinu í Nýheimum þá er þetta í fyrsts skipti sem slíkt námskeið er haldið hér og á hún von á að þátttaka verði góð en hámarksfjöldi á námskeiðið eru 15 manns. Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu geta sett sig í samband við Ragnhildi eða skráð sig á vef Þekkingarnetsins.</description>
      <alt>Sushi</alt>
Fékk flatskjá, Sony myndavél og Coleman tjald
      <description>Landsbankinn stóð fyrir sumarleik Klassa fyrir unglingar í vinnuskóla á aldrinum 13-16 ára yfir tímabilið 1. júni - 17. ágúst. Leikurinn fólst í því að spara yfir sumarmánuðina inná Klassa reikning og skrá sig svo á óskalista á netinu þar sem hægt var að óska sér 3ja gjafa. Þann 20. ágúst voru 10 heppnir vinningshafar dregnir út. Djúpavogsmærin Sandra Sif Karlsdóttir var einn af heppnum vinningshöfum og óskaði hún sér sjónvarps,myndavélar og tjalds.</description>
      <alt>Landsbankinn</alt>
8500 manns hafa komið á sýningar í Þórbergssetri frá opnun
      <description>Rúmlega fjögur þúsund manns hafa komið á sýningar í Þórbergssetri  það sem af er þessu ári en  mun fleiri komið  í hús eða tæp átta þúsund manns á þessum tíma. Þórbergssetur var opnað 1. júlí 2006 og eru verkefni þess fjölbreytt m.a. sýning er tengist ævi og verkum Þórbergs Þórðarsonar og eru tveir sýningarsalir í setrinu ásamt veitingasölu og gestamóttöku. Þetta hefur allt verið mjög gaman segir Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður Þórbergsseturs, verkefnið er í raun að verða til með því fólki sem hingað kemur og það fær góðar viðtökur og er ánægjulegt að finna hvað fólk er ánægt með þær sýningar sem hér eru. Þetta verkefni hefur mikla sérstöðu því hér er verið að draga fram sérkenni í menningu sveitasamfélags á Íslandi þar sem bent er á hluti í daglegu lífi eins og það var og er, örnefni og gamlar sögur.</description>
      <alt>Þórbergssetur</alt>
Rósaberg ehf með lægsta tilboðið í Þvottár- og Hvalnesskriður
      <description>Í dag voru opnuð tilboð í lagfæringu á Hringvegi 1 um Hvalnes og Þvottárskriður. Fimm aðilar buðu í verkið og var lægsta tilboðið frá Rósaberg ehf frá Höfn sem bauð kr. 48.8 millj. og er það 60,7% af kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 80.5 millj.  Hæsta tilboðið áttu Vegamenn ehf frá Reykjavík og hljóðaði það upp á 153.8 millj sem er 191,1% af kostnaðaráætlun. Að sögn Kristins Briem hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði verður á næstu dögum rætt við þá þrjá sem áttu lægstu tilboðin og sagðist hann vona að ljóst yrði við hvern verður samið innan viku og vonandi að framkvæmdir gætu hafist sem fyrst.</description>
Vegleg 40 ára afmælisdagskrá Skaftafellsþjóðgarðs
      <description>Næstu helgi þ.e. laugardaginn 15. september fer fram afmælisdagskrá í Skaftafellsþjóðgarði í tilefni af 40 ára afmæli Skaftafellsþjóðgarðs. Dagskráin hefst fyrir hádegi með sögugöngu frá Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli undir leiðsögn þjóðgarðsvarðar og starfsmanna þjóðgarðsins. Gengið vestur tjaldstæðið, framhjá Gömlu túnum, í Lambhagann, upp með Bæjargili, komið við í Rafstöðinni og síðan farið að Selbænum.  Saga þessara staða rifjuð upp. Sigurgeir Jónsson frá Fagurhólsmýri og Björn Sigfússon frá Brunnavöllum í Suðursveit leika á harmonikkur við Selbæinn. Léttar veitingar og orðið laust fyrir þá sem vilja taka til máls. Að þessu loknu verður hlé á dagskrá fram til kl. 14:00 er hún hefst að nýju í Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.</description>
Mikil gróska í trjárækt
      <description>Þó lítið hafi verið um vætu hér í Hornafirði í sumar er mikil gróska í vexti trjáa, runna og yfirleitt öllum garðagróðri, kartöflum og berjum af öllum tegundum. Þurrkarnir hafa þó ekki verið öllum hagstæðir og hafa þeir tafið fyrir heyskap hjá  mörgum bændum. Þurrkarnir hér á Suðausturlandi í sumar hafa dregið úr grassprettu á túnum einkum þar sem jarðvegur er sendinn  og hefur heyskapur því tekið lengri tíma en venja er. Sigurlaug Gissurardóttir í Árbæ segir að þar á bæ hafi allur heyskapur tafist , sæmilegt hey hafi náðst fyrir miðjan júlí en síðan hafi tún sviðnað og ekki hægt að slá fyrr en uppúr 20. ágúst. Léleg spretta var á grænfóðri sem hefur venjulega verið slegið þrisvar en nú er beðið eftir að geta slegið það í annað sinn. Kornuppskera verður minni en áður en vonir standa til að úr henni rætist og er kornskurður að hefjast.</description>