September
hvild2
hvild2
Nemendur efstu deildar grunnskólans á ferðinni (úr myndasafni Heppuskóla)

29.09.2007 September

Nýtt Þrykkjuráð í vinnuferð

Í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni er í upphafi vetrarstarfsins kosið í Þrykkjuráð en í það eru kjörnir níu nemendur úr 8., 9., og 10. bekk, þrír úr hverjum bekk. Nýtt Þrykkjuráð skipa: 10. bekkingarnir Stefán Lárus Reynisson sem er formaður , Vilhjálmur Oddsson og Ásgrímur Arason, úr 9. bekk koma Kjalar Jóhansson varaformaður, Bjarni Friðrik Garðarsson og Halldór Þórsson sem er ritari ráðsins, úr 8. bekk sitja i ráðinu Sólveig Sveinbjörnsdóttir sem er gjaldkeri þess, Kristey Valgeirsdóttir og Finnur Ingi Jónsson. Verkefni ráðsins er að fjalla um og leggja línur að félagslífi í Þrykkjunni ásamt starfsmönnum. Fundir eru haldnir vikulega.

Í gær fer ráðið í vinnuferð upp í Lón ásamt starfsmanni Þrykkjunnar Birgi Fannari Reynissyni þar sem lagðar verða línur um starfið og gerðar tilllögur um viðburði.

Í lok næstu viku fer síðan hluti af Þrykkjuráði á Landsmót SAMFÉS (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) sem haldið er að þessu sinni í Vestmannaeyjum. Á landsmótinu hittast unglingar úr félagsmistöðvarráðum um land allt og vinna í smiðjum og taka þátt í ýmsum skemmtilegum viðburðum sem boðið er upp á. Allir viðburðir í Þrykkjunni eru auglýstir í SkjáVarpinu í skólum og Þrykkjunni. Þrykkjan er til húsa í Sindrabæ.



Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica