September
Slatur_ Unnur Guðmundsdóttir
Slatur_ Unnur Guðmundsdóttir
Frá slátursölunni, Unnur Guðmundsdóttir (úr myndasafni)

27.09.2007 September

Slátursalan hefur nú opnað

Nú er það sláturgerðin sem er ofarlega ef ekki efst á verkefnalistanum hjá fólki. Unnur Guðmundsdóttir er mætt í afurðasöluna og verður með opið frá kl. 10.00-16.00 virka daga til 20. október. Gengið er inn í afurðasöluna frá bryggjunni. Unnur vill biðja sláturkaupendur endilega að geyma ekki til síðasta opnunardags afurðarsölunnar að kaupa slátur eða að gera sínar pantanir. Unnur vildi koma þeim leiðbeiningum á framfæri til þeirra sem ekki hafa notað gervikeppina, það er að leggið þá í saltvatn í 4-5 mínútur þá verða þeir mjúkir og meðfærilegir.

Hér látum við fylgja með ver á sláturafurðum
Verð á sláturafurðum er heil slátur kr.765, blóð kr. 82.00, mör kr.77.00 --

Eystu - 427.00 --
Þindar - 219.00 --
Lifur - 255.00 --
Hjörtu - 199.00 --
Svið - 449.00 --
Kjöt í heilum skrokkum sagað eftir óskum kaupanda kostar kr. 803.00 kg.
Gervisláturkeppir kosta 66.00 kr. stk.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica