Voru með gæludýrin sín á Reynivöllum í sumar
Staðarhaldarinn við Jökulsárlón og eigandi Reynivalla í Suðursveit Einar Björn Einarsson hefur búið starfsfólki sínu mjög gott aðsetur á Reynivöllum þar sem þeir dvelja yfir sumartímann þegar þau vinna við Jökulsárlón. Enda hentar það vel þar sem þeir koma oft langt að. Á Reynivöllum voru starfsmennirnir með gæludýr og var Einar Björn búinn að útbúa mjög góða aðstöðu fyrir dýrin svo að í ýmsu var að snúast þegar ekki var verið að sinna ferðamönnum á lóninu. Á Reynivöllum í sumar var því kominn hálfgerður dýragarður en þar voru risastór páfagaukur, tófa, 2 hundar, froskar og hestar og vonandi næsta sumar þegar starfsmenn flytja á ný að Reynivöllum mun tegundunum fjölga. Þetta er búið að vera ansi líflegt og skemmtilegt heimilislíf hjá okkur á Reynivöllum segir Einar Björn og bætir við að það sé ekki ólíklegt að hann fái sér kindur til að hafa á óðalinu sínu enda aðstaðan frábær.
Það er ekki að vita nema þarna á Reynivöllum verði í framtíðinni myndarlegt bú með fjölbreyttum bústofni og víst er að athafnamaðurinn Einar Björn er manna líklegastur til að standa fyrir því.





Skrifa athugasemd