Þekkingarnetið boðar til kynningarfundar í Nýheimum
Í vikunni mun Ragnhildur Jónsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá ÞNA heimsækja fyrirtæki á Hornafirði, Djúpavogi og á Breiðdalsvík. Tilefnið er að ræða mikilvægi símenntunnar sem stendur yfir þessa viku (24. til 30. september). Ragnhildur mun kynna verkefnið Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað, ásamt því að ræða mikilvægi læsis í daglegu lífi og kynna möguleg úrræði fyrir þá fjölmörgu sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða. Náms og starfsráðgjöf á vinnustað er heiti verkefnis sem Samtök atvinnulífsins, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvarnar í landinu vinna saman að. Markmið verkefnisins er m.a. að hvetja starfsmenn til að bæta við sig þekkingu og færni, veita upplýsingar um möguleika í umhverfinu og aðstoða við greiningu á áhugasviði og hæfni. Námsráðgjöf á vinnustað getur gagnast bæði starfsmönnum og fyrirtæki, þar sem markmiðið er að byggja upp þekkingu og ýta undir starfsánægju starfsmanna.
Miðvikudagurinn 26. sept. sem er árlegur símenntunardagur, mun Þekkingarnetið boða stjórnendur fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu til kynningarfundar í Nýheimum þar sem umræðan verða þessi verkefni í atvinnulífinu.





Skrifa athugasemd