Gospelnámskeið í Hafnarkirkju næstu helgi
Næstu helgi, 28.-30. september verður haldið gospelnámskeið hér á Höfn í annað sinn. Síðast, í nóvember 2005, voru mjög góðar undirtektir og full kirkjan á lokatónleikunum. Þátttakendur voru tæplega 50 talsins, fólk á öllum aldri, bæði söngfólk úr kórunum og aðrir sem gaman hafa að því að syngja. Þess má geta að það var metþátttaka hjá körlunum, svo það var gott jafnvægi í raddskipan í kórnum. Það eru konur úr Kvennakórnum sem hafa veg og vanda af námskeiðunum með styrk frá Hótel Höfn og Sveitarfélaginu. Síðast var æft upp á Hóteli en nú verður alfarið æft í Hafnarkirkju en veitingar verða frá Hótel Höfn. Lokatónleikarnir verða í Hafnarkirkju. Gospel er létt og skemmtileg tónlist, sem er gefandi að syngja. Þetta eru yfirleitt einfaldar raddsetningar, þrískiptar, og textar með jákvæðum boðskap. Lögð er áhersla á að syngja með tilfinningu og hafa gaman af. Það geta allir tekið þátt svo framarlega sem þeir eru ekki raddlausir!
Aðal driffjöður og kennari á námskeiðunum er Óskar Einarsson tónlistarmaður. En hver er hann? Flest okkar hafa séð hann í sjónvarpi, t.d. á tónlistarmyndabandi með Sálinni eða á árlegum jólatónleikum Fíladelfíu, svo ekki sé minnst á auglýsingu frá Húsasmiðjunni þar sem Gospelkór Reykjavíkur syngur undir stjórn hans. Blaðamaður vefsins hafði samband við Óskar og ræddi við hann um uppruna hans og tónlistarferil.
Óskar er fæddur og uppalinn á Akureyri, búsettur í Reykjavík, er kvæntur norskri konu og eiga þau þrjú börn. Óskar fór snemma að stunda tónlist. Hann var í Tónlistarskóla Akureyrar og starfaði mikið í Hjálpræðishernum, en þar er mikið tónlistarstarf - Óskar segir að líklegast hafi hann þar fengið gospelbakteríuna. Óskar segist hafa kynnst gospeli 12-13 ára gamall og var 15-16 ára þegar hann var farinn að stjórna kór sjálfur. Þegar Óskar var tvítugur útskrifaðist hann frá Menntaskólanum á Akureyri, tók þá við Menntaskólakórnum og stjórnaði honum í 4 ár ´87-91. Þá urðu kaflaskipti hjá honum er hann flutti til Reykjavíkur með fjölskylduna 1991, þá 24. ára gamall. Þar hélt hann áfram í Tónskóla Reykjavíkur og lauk þaðan blásarakennaraprófi, en hann hafði lært á saxafón með píanónáminu. Mastersnám í útsetningum og tónsmíðum tók hann síðan í Bandaríkjunum.
Óskar hefur starfað hjá Fíladelfíu sem organisti og tónlistarstjóri frá 1992. Hann hefur kennt útsetningar og tónheyrn við Tónskóla FÍH í 7 ár, útsetur mikið, bæði stærri og minni verkefni, ?prodúserar? tónlistarútgáfur og er í tónsmíðum.
Fyrir utan Fíladelfíukórinn stjórnar hann Gospelkór Reykjavíkur í tómstundum og hefur með báðum kórunum sinnt mörgum stórum og spennandi verkefnum, t.d. tónleikunum með Sálinni í Laugardalshöllinni, og svo hinum árlegu jólatónleikum í Fíladelfíu.
Það hafa verið haldin 40 gospelnámskeið á yfir 20 stöðum á landinu þar af sex sinnum á Eskifirði. Upphafið að námskeiðunum var að Guðmundur Karl prestur, sem var þá á Skagaströnd, fékk Óskar til að hjálpa til við kántrí-messu 1999. Þar var æft heila helgi fullt af lögum og að sögn Óskars var svo gaman að ekki var aftur snúið. Þetta spurðist út og síðan hefur verið nóg að gera. Það hefur fjölgað í kirkjukórum eftir þessi námskeið og margir sem sótt hafa námskeiðin hafa haldið áfram að syngja og/eða farið í söngnám. og kjölfarið hafa verið stofnaðir gospelkórar á sumum stöðum. Þetta hefur alla tíð verið Óskari hugsjónastarf mjög skemmtilegt og gefandi, en er mjög krefjandi. Stórt námskeið er heil helgi og er unnið af krafti í 16-18 tíma fyrir utan undirbúning! Hann reynir að halda ekki meira en 4-5 stór námskeið á ári og svo nokkuð fleiri styttri námskeið, sem annar ekki eftirspurn. Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl svo og tónleikarnir í lokin. Á Akureyri komu 500 manns á tónleikana eftir námskeið.
Seinni árin hef hann haft til aðstoðar fólk úr gospelkórunum sem hann stjórnar. Nú koma með honum sömu söngkonur og síðast, þær Hrönn Svansdóttir og Erdna Varðardóttir, sem leiða og kenna raddirnar. Frábærar söngkonur sem eru báðar starfandi í Fíladelfíu og við tónlist. Hrönn rekur tónlistarverslunina Hljóma og verður hún með sýnishorn af úrvalinu með sér.
Óskar kveðst hlakka mikið til að koma til Hafnar, þennan yndislega bæ. Það sé gott að komast úr hraðanum í Reykjavík og út á land. Það var frábært námskeiðið á Höfn síðast og verður ekki síðra núna, og þökkum við fyrir hversu vel er tekið á móti okkur sagði Óskar að lokum.
Nú er bara að skrá sig á námskeiðið.
Hægt er að nálgast upplýsingar um skráningu hér á vefnum.





Skrifa athugasemd