Mikill áhugi er á að hefja veiðar á Makríl
Nýlega fóru þrír útgerðarmenn frá Hornafirði ásamt tveim starfsmönnum Matís til Noregs til að kynna sér búnað og veiði á makríl. Mikill áhugi er á að hefja veiðar á Makríl og hafa þeir Ómar Fransson, Unnsteinn Þráinsson og Grétar Vilbergsson búið báta sína til makrílveiða og vonast til að komast á Papagrunnið meðan von er um veiði en þetta er ekki veiði sem stunduð er yfir vetrarmánuði. Makrílveiðarfærin eru alsjálfvirk frá því að þeim er sleppt í sjóinn og þar til makríllinn er kominn í lestina. Þetta er nánast eins og handfærarúllur og eru 40-50 krókar á hverjum slóða sem er mikið lengri en á venjulegum handfæraslóða segir Ómar Fransson sem búinn er að fara í prufutúr með nýju veiðarfærin. Þetta er algjör lúxus, maður getur bara farið og sest niður með kaffibollann og góða bók þangað til að hægt er að sigla í land með aflann.
Makríllinn var vaðandi í torfum hér á miðunum í sumar og við erum bjartsýnir á að þetta muni ganga vel segir Ómar og ennþá er makríllinn utan kvóta og verður vonandi áfram. Norðmenn hafa fryst makríl á Japansmarkað og hér hefur hann verið reyktur og einnig notaður til beitu. Matís er kominn með reykofn og vagunpökkunarvél á staðinn svo nú vantar bara makrílinn til vinnslu.





Skrifa athugasemd