September
Hattu2
Hattu2
Hættu áður en þú byrjar

18.09.2007 September

Hættu áður en þú byrjar

Nú á miðvikudaginn 19. september fá 8.- 10. bekkingar í Grunnskóla Hornafjarðar heimsókn frá Marita á Íslandi með forvarnaverkefnið "Hættu áður en þú byrjar". Að verkefninu standa Forvarna- og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík, Reykjavíkurborg og Marita á Íslandi sem er forvarnasvið Samhjálpar. Fræðslan er ætluð nemendum í efstu bekkjum grunnskólans og eins er foreldrum þeirra boðið til sérstaks fundar um það efni sem tekið er fyrir. Aðalfyrirlesari á fræðslufundunum er Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi og auk hans kemur fulltrúi frá lögreglunni, félagsmálastjóri ofl. Sýnd er íslensk Maritamynd um raunveruleikann í heimi fíkniefnaneytenda hér á landi. Eru foreldra nemenda í 8.- 10. bekk hvattir til að koma á fræðslufundinn í bíósal á miðvikudagskvöld kl. 20:00 með Magnúsi ofl.

Fleira er á döfinni í forvörnum m.a. er starfandi klúbburinn ?Flott án fíknar? en hann var stofnaður í vor. Búið er að stofna klúbba víða um land. Það er UMFÍ sem stendur að þessum klúbbum með aðstoð Lýðheilsustöðvar.. Markmið klúbbmeðlima er að gera samning með samþykki foreldra um að halda þær reglur sem gilda í klúbbnum sem er m.a. Að allir eru reyk- og vímuefna lausir og ætla sér að vera það a.m.k. meðan þeir eru í grunnskóla. Flestir klúbbfélagar hér eru úr 8. bekk. Á Unglingalandsmótinu í sumar buðu krakkarnir í klúbbnum hér öðrum klúbbfélögum í siglingu og gáfu öllum sjóhatta.
Þá er að fara í gang forvarnavinna með 8. bekkingum en það hefur verið undanfarin ár og er samstarfsverkefni grunnskólans og æskulýðs- og tómstundaráðs Hornafjarðar.

Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica