Metaðsókn í framhaldsskólann
Nú er skráningu í Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu á haustönn að mestu lokið og orðið ljóst að nemendur hafa aldrei verið fleiri. Núna eru um 360 nemendur skráðir þar af eru tæplega 170 í starfsnámi og ríflega 190 í bóknámi. Langflestir eru skráðir í 30 brl. skipstjórnarnámið eða um 130 manns sem koma víðs vegar af landinu og einhverjir þeirra eru búsettir erlendis. Á sjúkraliðabraut eru 26 skráðir og á vélstjórnarbraut annars stigs 13 nemendur. Auk þess eru um 20 nemendur víðsvegar um Austurland sem verða á félagsliðabraut en hún er eins og sjúkraliðabrautin samstarfsverkefni framhaldsskólanna á Austurlandi.
Á stúdentsbrautum eru 90 nemendur, um 20 nemendur eru á almennri braut, 15 nemendur eru úr Grunnskóla Hornafjarðar sem stunda framhaldsskólanám samkvæmt sérstökum samningi á milli skólanna. Ríflega 70 nemendur stunda bóknám en eru ekki skráðir á sérstaka braut. Af þeim nemendum sem stunda bóknám eru 70 í fjarnámi.
Í dag föstudaginn 14.september verða flutt ávörp og tónlistaratriði í Nýheimum frá k. 12.10.-12.40. Boðið verður upp á veitingar. Allir velkomnir og hvattir til að mæta frá frá kl.12-16.
www.fas.is





Skrifa athugasemd