Hornfirðingar læra að búa til Sushi
Að venju þá er mikið um að vera hjá Þekkingarneti Austurlands og úrval námskeiða hefur aldrei verið meir. Nú gefst Hornfirðingum m.a. tækifæri á að læra að búa til sushi undir stjórn Chiharu Kawai. Chiharu er er fædd og uppalin í Yokohama í Japan en hefur búið á Hornafirði í 6 ár og meðal annars lokið stúdentsprófi frá FAS. Sushi er þjóðréttur Japans og á sér yfir 130 ára langa sögu. Í sushi er lítil fíta en mikið er notað af grænmeti og hráum fiski sem er mjög hollur sem gefur manni mikla orku. Sushinámskeiðið hefst laugardaginn 15. september og verður kennt í eldhúsi Heppuskóla. Að sögn Ragnhildar Jónsdóttur verkefnisstjóra hjá Þekkingarnetinu í Nýheimum þá er þetta í fyrsts skipti sem slíkt námskeið er haldið hér og á hún von á að þátttaka verði góð en hámarksfjöldi á námskeiðið eru 15 manns. Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu geta sett sig í samband við Ragnhildi eða skráð sig á vef Þekkingarnetsins.
Önnur námskeið sem nú fara að byrja hjá Þekkingarnetinu eru Íslenska fyrir útlendinga I og III og margvísleg tölvunámskeið í október.





Skrifa athugasemd