September
Fékk flatskjá, Sony myndavél og Coleman tjald
Landsbankinn stóð fyrir sumarleik Klassa fyrir unglingar í vinnuskóla á aldrinum 13-16 ára yfir tímabilið 1. júni - 17. ágúst. Leikurinn fólst í því að spara yfir sumarmánuðina inná Klassa reikning og skrá sig svo á óskalista á netinu þar sem hægt var að óska sér 3ja gjafa. Þann 20. ágúst voru 10 heppnir vinningshafar dregnir út. Djúpavogsmærin Sandra Sif Karlsdóttir var einn af heppnum vinningshöfum og óskaði hún sér sjónvarps,myndavélar og tjalds.
Sandra Sif fékk 15 tommu flatskjá, 7,2 mp Sony myndavél og Coleman tjald.





Skrifa athugasemd