8500 manns hafa komið á sýningar í Þórbergssetri frá opnun
Rúmlega fjögur þúsund manns hafa komið á sýningar í Þórbergssetri það sem af er þessu ári en mun fleiri komið í hús eða tæp átta þúsund manns á þessum tíma. Þórbergssetur var opnað 1. júlí 2006 og eru verkefni þess fjölbreytt m.a. sýning er tengist ævi og verkum Þórbergs Þórðarsonar og eru tveir sýningarsalir í setrinu ásamt veitingasölu og gestamóttöku. Þetta hefur allt verið mjög gaman segir Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður Þórbergsseturs, verkefnið er í raun að verða til með því fólki sem hingað kemur og það fær góðar viðtökur og er ánægjulegt að finna hvað fólk er ánægt með þær sýningar sem hér eru. Þetta verkefni hefur mikla sérstöðu því hér er verið að draga fram sérkenni í menningu sveitasamfélags á Íslandi þar sem bent er á hluti í daglegu lífi eins og það var og er, örnefni og gamlar sögur.
Þorbjörg segir einnig að hún hafi vakið athygli á einangrun eins og hún var hér fyrir ekki svo löngu síðan eða fyrir um 40 árum og reynt að kynna þá horfnu veröld þar sem allt var með öðrum hætti bæði samgöngur og atvinnulíf. Margir Íslendingar átta sig ekki á hvað þetta var einangrað svæði hér meðan Hornafjarðarfljót voru óbrúuð (brúuð 1961) og ekki var fært yfir þau nema við bestu aðstæður.
Það þarf meiri kynningu fyrir erlenda ferðamenn en ég reyni að fara með þeim í leiðsögn um sýningarnar og veita þeim innsýn í það sem hér er verið að fjalla um segir Þorbjörg, við erum komin með kynningartexta á ensku og þýsku en það vantar að gefa út bækur Þórbergs á fleiri tungumálum og eins á íslensku því þær eru flestar uppseldar, vonandi stendur þetta allt til bóta. Það er að mestum hluta Íslendingar sem koma á sýningarnar en útlendingarnir koma mikið í veitingarnar sem hér eru. Matseðillinn er alíslenskur þar sem við bjóðum upp á eldissilung sem við ræktum sjálf sem aðalrétt staðarins á kvöldverðarhlaðborði, matreiddan á fjölbreyttan hátt s.s. innbakaðan, gufusoðinn, reyktan og ýmsa silungarétti einnig er lambakjöt og rabarbaragrautur á eftir. Kjötsúpa er á boðstólum alla daginn og eins á kvöldin.
Í sumar voru sjö starfsmenn í vinnu á Hala við fjölbreytt störf í fiskeldi, við gistiþjónustu og á Þórbergssetri. Byrjað er að undirbúa starfsemi setursins í vetur.





Skrifa athugasemd