September
Vegamál
Vegamál
Glíma vegagerðarmanna við þjóðveg 1 í Hvalnessskriðum (úr myndasafni)

11.09.2007 September

Rósaberg ehf með lægsta tilboðið í Þvottár- og Hvalnesskriður

Í dag voru opnuð tilboð í lagfæringu á Hringvegi 1 um Hvalnes og Þvottárskriður. Fimm aðilar buðu í verkið og var lægsta tilboðið frá Rósaberg ehf frá Höfn sem bauð kr. 48.8 millj. og er það 60,7% af kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 80.5 millj. Hæsta tilboðið áttu Vegamenn ehf frá Reykjavík og hljóðaði það upp á 153.8 millj sem er 191,1% af kostnaðaráætlun. Að sögn Kristins Briem hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði verður á næstu dögum rætt við þá þrjá sem áttu lægstu tilboðin og sagðist hann vona að ljóst yrði við hvern verður samið innan viku og vonandi að framkvæmdir gætu hafist sem fyrst.

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er um er að ræða 4,2 km langan kafla frá slitlagsenda norðan við Þvottárskriður og suður að slitlagsenda sunnan við Hvalnesskriður. Vegurinn verður lagfærður á þessum kafla og hann lagður bundnu slitlagi. Sett verða vegrið meðfram vegi á köflum sjávarmegin í skriðunum, samtals 2.860 m. Einnig verða settir grjótkassar fjallsmegin meðfram vegi til að varna grjóthruni inn á veg. Veglína helst að mestu óbreytt og er framkvæmdin að mestu leyti innan núverandi vegsvæðis. Um er að ræða aðgerðir til að auka öryggi vegfarenda uns jarðgöng verða gerð undir Lónsheiði.

Skriðurnar eru óstöðugar og því oft hrun á veginn. Það eru mun meiri skriðuföll í Hvalnesskriðunum en Þvottárskriðum og stærra grjót, sem fellur þar niður á veg. Hrun hefur ágerst undanfarin ár sökum tíðra skipta milli frosts og þíðu. Meginhluti hrunsins er smásteinar, minni en 10-15 sm, en stöku stórir steinar falla annað veifið. Þetta skapar stöðuga hættu og er kostnaðarsamt því hreinsa þarf veginn flesta daga. Vonir standa til að grjótkassarnir (gabionar) muni stöðva þetta hrun að miklu leyti.

Umferð á þessum kafla var 220 bílar á dag að meðaltali yfir árið 2005 (ÁDU), 400 bílar að meðaltali yfir sumarið (SDU) og 100 bílar að meðaltali yfir veturinn (VDU).

Vegurinn verður lagður skv. vegtegund C2 sem er 6,5 m breiður vegur með 6,3 m breiðu bundnu slitlagi. Malaraxlir eru 0,1 m. Slitlag er breikkað í beygjum þar sem radíus er 400 m eða minni. Axlir eru breikkaðar þar sem eru vegrið eða grjótkassar.

Önnur tilboð voru frá :
Héraðsverk hf frá Egilsstöðum sem bauð kr. 74.7 millj. (80,5% af kostnaðaráætlun)
MCC ehf frá Neskaupsstað, bauð kr. 80 millj (00,5% af kostnaðaráætlun)
S.G. Vélar ehf Djúpavogi buðu kr. 99.9 millj. (124,1% af kostnaðaráætlun)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica