September
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli
Vestragil, gamla rafstöðin í Skaftafelli
Vestragil, gamla rafstöðin í Skaftafelli (úr myndasafni)

11.09.2007 September

Vegleg 40 ára afmælisdagskrá Skaftafellsþjóðgarðs

Næstu helgi þ.e. laugardaginn 15. september fer fram afmælisdagskrá í Skaftafellsþjóðgarði í tilefni af 40 ára afmæli Skaftafellsþjóðgarðs. Dagskráin hefst fyrir hádegi með sögugöngu frá Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli undir leiðsögn þjóðgarðsvarðar og starfsmanna þjóðgarðsins. Gengið vestur tjaldstæðið, framhjá Gömlu túnum, í Lambhagann, upp með Bæjargili, komið við í Rafstöðinni og síðan farið að Selbænum. Saga þessara staða rifjuð upp. Sigurgeir Jónsson frá Fagurhólsmýri og Björn Sigfússon frá Brunnavöllum í Suðursveit leika á harmonikkur við Selbæinn. Léttar veitingar og orðið laust fyrir þá sem vilja taka til máls. Að þessu loknu verður hlé á dagskrá fram til kl. 14:00 er hún hefst að nýju í Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.

Sjá nándar dagskrá á viðburðir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica