Mikil gróska í trjárækt
Þó lítið hafi verið um vætu hér í Hornafirði í sumar er mikil gróska í vexti trjáa, runna og yfirleitt öllum garðagróðri, kartöflum og berjum af öllum tegundum. Þurrkarnir hafa þó ekki verið öllum hagstæðir og hafa þeir tafið fyrir heyskap hjá mörgum bændum. Þurrkarnir hér á Suðausturlandi í sumar hafa dregið úr grassprettu á túnum einkum þar sem jarðvegur er sendinn og hefur heyskapur því tekið lengri tíma en venja er. Sigurlaug Gissurardóttir í Árbæ segir að þar á bæ hafi allur heyskapur tafist , sæmilegt hey hafi náðst fyrir miðjan júlí en síðan hafi tún sviðnað og ekki hægt að slá fyrr en uppúr 20. ágúst. Léleg spretta var á grænfóðri sem hefur venjulega verið slegið þrisvar en nú er beðið eftir að geta slegið það í annað sinn. Kornuppskera verður minni en áður en vonir standa til að úr henni rætist og er kornskurður að hefjast.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands virðist hafa verið þurrast á úrkomusamasta svæði landsins, Suðausturlandi. Sú úrkoma sem þar mældist þætti þó dágóð í þurrkasveitum norðanlands. Úrkoma síðustu þrjá mánuði hefur mælst 163 mm á Fagurhólsmýri og er það tæpum 17 mm minna en áður hefur minnst mælst í þessum mánuðum. Úrkomumælingar á Fagurhólsmýri hófust 1921. Næstminnst var úrkoman 180 mm, sumarið 1958. Í ágúst mældist úrkoma 48mm og hefur aðeins fjórum sinnum verið minni á sl.40 árum.
Við hér á Mýrum fundum verulega fyrir því hvað lítið var orðið í vatnsbólum okkar og fólk þurfti að fara sparlega með vatn og í tvígang þurftum við að fylla á vatnstank aukalega segir Sigurlaug. Þetta sýnir að vatnið okkar góða er ekki sjálfsögð auðlind sem alltaf er nóg í.





Skrifa athugasemd