September
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

11.09.2007 September

Esperantóþing á Hala

Það er von á góðum gestum í heimsókn á Hala um næstu helgi en þar verður haldinn aðalfundur Íslenska esperantósambandsins í Þórbergssetri 14. til 16. september með tilheyrandi skemmtun. Alls munu um 40 manns mæta á staðinn og dvelja í Suðursveit yfir helgina. Heiðursgestur á þinginu verður Tibor Szabadi frá Ungverjalandi. Tibor er félagi í Ungverska rithöfundasambandinu og hefur fengist við þýðingar úr ungversku á esperanto og einnig úr esperanto á ungversku. Hefur hann til dæmis þýtt bæði ljóð eftir Jónas Hallgrímsson (Gunnarshólma) og Vilborgu Dagbjartsdóttur eftir þýðingum á esperanto úr tímaritinu La Tradukisto sem íslenskir esperantistar gefa út. Tibor Szabadi mun á þinginu halda fyrirlestur um þýðingar bókmenntaverka með esperanto sem millimál.


Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Lagt af stað úr Reykjavík (BSÍ) föstudaginn 14. september, klukkan 14.00, frá BSÍ.
  • Leiðsögn á esperanto og íslensku.
  • Komið að Hala um kl. 20.00 og drukkið kvöldkaffi þar
  • Þórbergssafn skoðað

Laugardagur 15. september

  • Morgunverður kl. 8.00-9.30
  • Aðalfundur IEA kl. 10.00-11.00
  • Fyrirlestur heiðursgestsins, Tibor Szabadi frá Ungverjalandi, um esperanto sem millimál við þýðingar kl. 11.00-12.00
  • Hádegisverður kl. 12.00-13.00
  • Ferð um Suðursveit og Hornafjörð kl. 13.00?18.00. Leiðsögn Hallgrímur Sæmundsson
  • Kvöldverður á Þórbergssetri kl. 19.00
  • Kvöldvaka kl. 20.00-22.00

 

Sunnudagur, 16. september

  • Gengið verður um nánasta umhverfi á Hala fyrir hádegi. Þórbergssafn verður opið.
  • Hádegisverður klukkan 12
  • Haldið heim. Farið frá Hala upp úr hádegi

 

Hornfirðingar eru hjartanlega velkomnir að líta við í Þórbergssetri á laugardagskvöldið og taka þátt í kvöldvöku með esperantistum og kynna sér starfsemi Íslenska esperantosambandsins. Meðal íslenskra gesta er Hallgrímur Sæmundsson frá Stóra Bóli á Mýrum, einnig Austfirðingurinn Vilborg Dagbjartsdóttir skáld en hún var heimilisvinur á Hringbraut 45 hjá þeim Þórbergi og Margréti um árabil.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica