Félagsmiðstöðin Þrykkjan setur í gírinn
Á morgun föstudag hefst vetrarstarf félagmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar. Þrykkjan er til húsa í Sindrabæ. Félagsmiðstöðin er fyrir nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar frá 6. bekk og til 10 unda bekkjar. Er opnunartími misjafn eftir bekkjum. Þá er nemendum í FAS gefinn kostur á að nýta sér félagsmiðstöðina. Allt starf í Þrykkjunni er auglýst á SkjáVarpinu og í skólunum. Ef um stærri viðburði og ferðalög er að ræða er sérstaklega haft samband við foreldra. Í þessari viku eru starfsmenn Þrykkjunnar þeir Haukur Helgi Þorvaldsson og Birgir Fannar Reynisson að kynna nemendum í 8., 9., og 10. bekk starfsemina og leita eftir hugmyndum um starfið.
Annað kvöld verður kosningakvöld í Þrykkjuni þar sem verður kosið í Þrykkju- og skemmtiráð. Í ráðinu eiga sæti níu nemendur þrír úr hverjum bekk 8. til 10 unda. Þetta verður örugglega spennandi kvöld. Þrykkju- og skemmtiráðið kemur síðan saman á mánudaginn og kýs sér formann. Ráðið fundar einu sinni í viku með starfsmönnum. Það fer líka ásamt starfmanni í vinnuferð þar sem settar eru fram hugmyndir að starfinu sem síðan er unnið úr. Líka er gert ráð fyrir að stofna önnur ráð sem vinna að sérstökum málum innan Þrykkjunnar. Félagsmiðstöðin Þrykkjan er í Samfés sem er Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi sem stendur fyrir mörgum viðburðum á landsvísu hjá félagsmiðstöðvunum. Þá er Þrykkjan líka aðili að Samaust sem eru Samtök félagsmiðstöðva á Austurlandi. S.l. vetur tók Þrykkjan að sér að halda hér söngvakeppni Samaust þar sem söngvarar úr félagsmiðstöðvunum á Austurlandi sungu hvert fyrir annað og kepptu um leið um sæti í stóru Samfés söngvarakeppninni.
Nefna má nokkra viðburði sem hafa unnið sér nokkuð fastan sess í starfi Þrykkjunnar s.s. sundstuðið, hrekkjavökuna, útgáfu Þrykkjufrétta, Landsmót Samfés, söngvakeppnina, innileguna, Þrykkjuþrautir, Þrykkjurokk, ferð á Samféshátíð, kaffihúsakvöld. Í samstarfi við Heppuskóla hefur verið haldinn Fullveldisfagnaður og Vorhátíð.
Starfsmenn Þrykkjunnar vona að börn og unglingar finni eitthvað við sitt hæfi í félagsmiðstöðinni og verði dugleg að kíkja við og eins að stinga upp á viðburðum.





Skrifa athugasemd