Pantar útlendinga til vinnu í Sláturhúsið
Sauðfjárslátrun í sláturhúsi Norðlenska á Höfn hefst ekki fyrr en 18. sept. Það eru allir byrjaðir að slátra nema við segir Einar Karlson sláturhússtjóri á Höfn og ástæðan er sú að bændur hér vilja draga það til 18.sept. Slátrað verður svipuðum fjölda og í fyrra .þ.e. um 30-35 þúsund fjár af svæðinu austan úr Breiðdal vestur í Vestur-Skaftafellssýslu. Flestir bændur í Öræfum fara með sitt sláturfé á Selfoss og aðeins verður fé frá tveim bæjum í Öræfum slátrað hjá Norðlenska á Höfn.
Einar segir að hann reyni ekki lengur að auglýsa eftir fólki hér heldur panti útlendinga til vinnu í sláturhúsinu og á hann von á 23-25 frá Finnlandi , Svíþjóð, Nýja-Sjálandi og fleiri stöðum. Erfitt reynist þó að fá reynda slátrara til starfa í svona stuttan tíma eins og sláturtíð hér stendur.





Skrifa athugasemd