Nýnemar í FAS fengu sína busavígslu
Nýnemar í Framhaldsskólanum í Nýheimum fengu sína busavígslu á föstudaginn þegar eldri nemendur skólans vígðu þá formlega inn í skólann. Að venju þurftu nýju nemendurnir að leysa ýmsar þrautir mismunandi skemmtilegar eða öllu heldur mismunandi ónotalegar og það þýddi ekkert að reyna að skorast undan því þeir eldri fylgdust vel með að allt færi eftir því sem til var ætlast. Klæðnaður busanna var mjög óvenjulegur og vel áberandi og mætti hópurinn í Miðbæ áður en þrautagangan hófst úti á miðbæjarsvæðinu þar sem þeir skemmtu viðskiptavinum og starfsfólki verslananna.
Þegar búið var að fara allar þrautaleiðirnar og nemendur orðnir illa lyktandi og óhreinir sáu slökkviliðsstjórarnir þeir Steinþór og Jón Stefán um hreingerninguna og smúluðu allt liðið, reyndar með volgu vatni. Nú eru nýnemarnir orðnir fullgildir nemendur í framhaldsskólanum og geta farið að hugsa um hvernig taka skal á nýjum nemendum skólans næsta haust





Skrifa athugasemd