Næstu helgi, 28.-30. september verður haldið gospelnámskeið hér á Höfn í annað sinn. Síðast, í nóvember 2005, voru mjög góðar undirtektir og full kirkjan á lokatónleikunum. Þátttakendur voru tæplega 50 talsins, fólk á öllum aldri, bæði söngfólk úr kórunum og aðrir sem gaman hafa að því að syngja. Þess má geta að það var metþátttaka hjá körlunum, svo það var gott jafnvægi í raddskipan í kórnum. Það eru konur úr Kvennakórnum sem hafa veg og vanda af námskeiðunum með styrk frá Hótel Höfn og Sveitarfélaginu. Síðast var æft upp á Hóteli en nú verður alfarið æft í Hafnarkirkju en veitingar verða frá Hótel Höfn. Lokatónleikarnir verða í Hafnarkirkju. Gospel er létt og skemmtileg tónlist, sem er gefandi að syngja. Þetta eru yfirleitt einfaldar raddsetningar, þrískiptar, og textar með jákvæðum boðskap. Lögð er áhersla á að syngja með tilfinningu og hafa gaman af. Það geta allir tekið þátt svo framarlega sem þeir eru ekki raddlausir! Aðal driffjöður og kennari á námskeiðunum er Óskar Einarsson tónlistarmaður. En hver er hann? Flest okkar hafa séð hann í sjónvarpi, t.d. á tónlistarmyndabandi með Sálinni eða á árlegum jólatónleikum Fíladelfíu, svo ekki sé minnst á auglýsingu frá Húsasmiðjunni þar sem Gospelkór Reykjavíkur syngur undir stjórn hans. Blaðamaður vefsins hafði samband við Óskar og ræddi við hann um uppruna hans og tónlistarferil.
Lesa meira